Meint handrukkun: Hótuðu að dreifa ósönnum sögum um kynferðisbrot ef hann greiddi ekki milljón Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. apríl 2015 23:15 Frá Akureyri. Vísir/Pjetur
Ríkissaksóknari hefur höfðað mál gegn karlmanni á sextugsaldri, karlmanni á fertugsaldri og konu á þrítugsaldri fyrir tilraun til fjárkúgunar norðan heiða. Akureyringunum þremur er gefið að sök að hafa reynt að hafa fé af manni með hótunum um að hann yrði beittur ofbeldi og borið á hann röngum sökum um kynferðisbrot ef hann greiddi konunni ekki fjármuni. Hótanir þremenninganna, sem hafðar voru frammi á heimili mannsins, urðu til þess að maðurinn millifærði eina milljón króna af bankareikningi sínum inn á bankareikning konunnar. Millifærslan gekk hins vegar ekki eftir að því er segir í ákæru. Telst þessi hluti ákærunnar varða 251. grein almennra hegningarlaga. Við sama tilefni, á heimili mannsins, eru þremenningarnir sakaðir um að hafa tekið VISA greiðslukort mannsins og haft á brott með sér. Telst brotið varða 245. grein almennra hegningarlaga. Í framhaldinu hafi þau framið fjársvik með því að hafa notað greiðslukortið til að svíkja út vörur að fjárhæð tæplega 40 þúsund krónur í Keiluhöllinni á Akureyri. Þá fylltu þau á símaeignir og greiddu fyrir bensín daginn eftir með sama greiðslukorti fyrir samanlagt um 35 þúsund krónur. Ákæruliðirnir að ofan eru hluti af stærri ákæru ríkissaksóknara þar sem þrír menn, þar á meðal sá á sextugssaldri í fyrrnefndum ákæruliðum, eru sakaðir um að hafa hótað löglærðum fulltrúa lögreglustjórans á Akureyri, fara fram með ofbeldi gegn honum og leggja eld að bifreið hans í nóvember síðastliðnum. Nánar um það mál hér að neðan.
Tengdar fréttir Lofað allt að hálfri milljón fyrir að hóta fulltrúa lögreglustjórans Karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri eru sakaðir um að hafa að undirlagi karlmanns á sextugsaldri haft í hótunum við fulltrúa lögreglustjórans á Akureyri og kveikt í bíl hans. 20. apríl 2015 17:00 Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Sjá meira
Lofað allt að hálfri milljón fyrir að hóta fulltrúa lögreglustjórans Karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri eru sakaðir um að hafa að undirlagi karlmanns á sextugsaldri haft í hótunum við fulltrúa lögreglustjórans á Akureyri og kveikt í bíl hans. 20. apríl 2015 17:00