Segja stjórnvöld skerða réttindi sjóðfélaga Samúel Karl Ólason skrifar 14. apríl 2015 13:11 Vísir/Anton
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs mun leggja fram breytingartillögu um að skerða réttindi sjóðsfélaga á ársfundi sjóðsins á morgun. Þetta er til komið vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um að lækka örorkuframlag til gildis, eins og það kemur fram í ávarpi stjórnarformanns Gildis í ársskýrslu. Í tilkynningu frá lífeyrissjóðnum segir að örorkubyrði sé mismikil hjá lífeyrissjóðum þar sem að störf fólks séu ólík. „Þannig er örorkubyrðin mun meiri hjá þeim sjóðum þar sem sjóðfélagar sinna störfum sem fela í sér aukna slysaáhættu og líkamsslit eins og raunin er hjá verkafólki og sjómönnum sem eru sjóðfélagar Gildis,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að niðurstöður kjarasamninga undanfarna áratugi hafi oftar en ekki falið í sér auknar tryggingar launa þegar starfsævi ljúki. Það hafi verið almenn sátt um að aukin áhætta vegna slysa og vinnuálags í vissum störfum væri ábyrgð samfélagsins. Í lok ársins 2005 lýsti þáverandi ríkisstjórn yfir jöfnun á örorkubyrði og var það ein af forsendum kjarasamninga sem skrifað var undir það ár. Gildi segir að nú séu stjórnvöld að víkja sér undan þeirri ábyrgð. „Það blasir því við að ríkið er með aðgerðum sínum að skerða sérstaklega lífsafkomu þess hóps samfélagsins sem sinnir erfiðisvinnu, verkafólks og sjómanna, umfram aðra hópa samfélagsins.“
Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Sjá meira