Rætt um tölvuvarnir: „Tugir kvenna leitað til Kvennaathvarfsins heima á Íslandi“ Jóhann Óli Eiðsson skrifar 17. apríl 2015 12:20
Tölvuglæpir og sérstök fjargægisforrit voru til umræðu í Morgunþættinum á FM957. Ósk Gunnars og Rikki G, sem leysti Sverri Bergmann af, slógu þá á þráðinn til Ýmis Vigfússonar, tölvunarfræðings við Emory háskóla í Atlanta. „Það eru til hugbúnaðir sem fólk getur notað til að fylgjast með einhverjum öðrum úr fjarska,“ segir Ýmir. „Það hefur verið mikil gróska í slíkum búnaði að undanförnu. Mörg pör sem treysta ekki hvort öðru setja svona upp í tölvunni hjá hinum aðilanum.“ Forritin gera þér meðal annars kleyft að skoða vefmyndavélina án vitundar hins, hlustað á míkrafóninn, séð öll skeyti og það sem fer fram á skjánum og tekið myndir án þess að aðilinn viti af því. Forritin eru til bæði fyrir síma og tölvur „Það eru tugir dæma um að konur hafi leitað í Kvennaathvarfið heima á Íslandi undanfarin tvö ár eftir að hafa orðið fyrir barðinu á svona búnaði.“ Glæpasamtök hafa einnig notað búnaðinn að undanförnu til að komast yfir kreditkortanúmer eða viðkvæmar upplýsingar. Stærsti hópurinn sem notar þau er hins vegar gerendur heimilisofbeldis. „Helsta vörnin gegn þessu er að opna ekkert sem þú veist ekki hvað er og að uppfæra forrit reglulega. Uppfærslurnar þýða að veikleiki hefur fundist og verið er að eyða þeim. Einnig er ágætt ráð að meðan þú ert ekki að nota vefmyndavélina þá er hægt að líma límband yfir hana,“ segir Ýmir. Spjallið í heild sinni má heyra hér að ofan.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Sjá meira