Sýkingin í síldinni drap um 500.000 tonn Svavar Hávarðsson skrifar 7. apríl 2015 09:47 Kap VE veiddi sild úr Vestmannaeyjahöfn áður en hún drapst - mengunarhætta var ástæðan fyrir sérstöku leyfi til veiðanna. Fréttablaðið/Óskar
Sýkingin sem kom upp í íslenska sumargotssíldarstofninum haustið 2008 keyrði stofninn niður úr 900 þúsund tonnum í 400 til 500 þúsund tonn. Lítið sem ekkert nýsmit hefur átt sér stað síðan haustið 2010 og sýkingin úr sögunni. Í ársskýrslu dýralæknis fisksjúkdóma er sagt frá hinni umfangsmiklu sýkingu sem varð af völdum sníkjudýrsins Ichthyophonus hoferi (hnyð) haustið 2008 og var það í fyrsta skipti sem slík farsótt var staðfest hér við land. Ekki fyrr en fjórum árum eftir smitið komu fram ótvíræðar vísbendingar um að faraldurinn væri í rénun og horfur með styrkingu veiðistofns vænkuðust með tilkomu sterkra, lítið sýktra árganga. Rannsóknir Hafrannsóknastofnunar sýna þetta ótvírætt og að sýkingarhlutfall í stofninum er tengt árgöngum, þar sem 2004-2006 árgangarnir hafa haft langhæsta hlutfallið og árgangur 2008 og yngri nánast ósýktir. Stofnunin hefur ályktað að sýkingin innan stofnsins hafi nánast ekkert þróast eða ágerst sem bendir til þess að síld með sýkingareinkenni drepist ekki af hennar völdum og viðbótardauði í stofninum af völdum sýkingarinnar sé því enginn. Gísli Jónsson, dýralæknir fisksjúkdóma hjá Matvælastofnun, telur að vandamálið með sýkingu síldarinnar sé úr sögunni. Sérstakar aðstæður hafi greinilega skapast á þeim árum sem árgangar sýktust að stóru leyti. Sérstaðan hér miðað við áður þekkta faraldra í til dæmis Norðursjó, sem hafa að öllu jöfnu staðið yfir í 3-5 ár, er að hér var sýkingin þaulsetnari. Hafa sérfræðingar varpað fram þeirri tilgátu að kaldari sjór hér við land hafi valdið því að sýkingin hafi tekið heldur lengri tíma að ganga yfir en áður hefur þekkst í hlýrra farvatni. Sumargotssíldin hefur orðið fyrir fleiri áföllum, en eins og alþjóð veit drápust rúmlega 50.000 tonn samtals í síldardauðanum mikla í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi um miðjan desember 2012 og aftur í febrúar 2013. Veturseta síldarinnar hefur nú breyst, og heldur stofninn sig ekki nær alfarið inni á Breiðafirði. Á liðnum vetri héldu aðeins um 70 þúsund tonn til í Kolgrafafirði miðað við allt að 300 þúsund tonn árin á undan. Gísli telur breytta vetrarsetu góðar fréttir í tvennum skilningi. Hætta á síldardauða innan fjarðar í Kolgrafafirði er úr sögunni og ekki síður minni líkur á mikilli sýkingu sem að hluta til verður rakin til þess að síldin bunkar sér upp á litlu svæði.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira