„Þetta verður mjög fallegur fermingardagur fyrir drenginn“ Bjarki Ármannsson skrifar 24. mars 2015 17:47 Búið er að bjóða fram nær allt sem þarf til að halda fermingarveislu fyrir son dauðvona manns. Vísir/Stefán/GVA
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands, segist vart hafa haft undan að svara símanum frá því í gærkvöldi vegna fólks sem vill bjóða fram hjálp við að halda veislu fyrir fermingardreng nokkurn. Greint var frá því í gær að Fjölskylduhjálp óskaði eftir aðstoð fyrir hönd fimm barna föður með banvænan sjúkdóm, sem sá ekki fram á að geta haldið veislu fyrir son sinn sem fermist um páskana. „Þetta er búið að ganga alveg yndislega vel og þetta sýnir bara hvað þjóðin sýnir mikla samstöðu,“ segir Ásgerður. Hún segir að yfir fimmtíu þúsund manns hafi séð færslu samtakanna sem birt var í gærkvöldi og að margir hafi lagt inn pening á bankareikning fjölskyldunnar í kjölfarið. Þá er fólk búið að bjóða fram hér um bil alla þá þjónustu sem þarf til þess að halda veisluna sjálfa. Ásgerður bendir þó á að ekki er hægt að fullyrða að staðið verði við öll boðin.Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands.Vísir/GVA„Við munum nýta það sem er búið að bjóða,“ segir hún. „Við munum vinna úr þessu næstu daga og sjá hverju þau landa. Þetta lítur mjög vel út og þetta verður mjög fallegur fermingardagur fyrir drenginn.“ Faðir drengsins er sagður hafa veikst fyrir mánuði síðan og liggi nú fyrir dauðanum á spítala. Hann eigi sér þá ósk að halda veislu fyrir soninn en engir peningar séu til á heimilinu. „Ég talaði við föðurinn í dag,“ segir Ásgerður. „Hann er náttúrulega á spítalanum en hann ætlar að reyna að mæta í veisluna. Hann er náttúrulega afskaplega þakklátur.“Hægt er að styrkja fjölskylduna með því að leggja inn á reikninginn 0328-26-5619, kt. 091174-5619.
Tengdar fréttir Hjálpa dauðvona föður að halda fermingarveislu Ekki hefur staðið á viðbrögðunum eftir að Fjölskylduhjálp sagði frá fimm barna föður sem á ekki fyrir veislu. 23. mars 2015 21:26 Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira
Hjálpa dauðvona föður að halda fermingarveislu Ekki hefur staðið á viðbrögðunum eftir að Fjölskylduhjálp sagði frá fimm barna föður sem á ekki fyrir veislu. 23. mars 2015 21:26