Hjálpa dauðvona föður að halda fermingarveislu Bjarki Ármannsson skrifar 23. mars 2015 21:26 Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar. Vísir/GVA
Fjölskylduhjálp Íslands hefur óskað eftir hjálp fyrir hönd dauðvona fimm barna föður sem vill veita barni sínu fermingarveislu. Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar, segir fjölmarga hafa boðið fram aðstoð eftir að greint var frá tilfellinu á Facebook-síðu samtakanna. „Þetta barst til mín á föstudaginn var og ég bað konuna að hafa samband við mig á sunnudag, sem hún gerði,“ segir Ásgerður. „Í þessu tilviki er um að ræða ungan mann sem á fimm börn. Hann veiktist fyrir mánuði síðan og liggur núna mjög veikur á spítala.“ Ásgerður segir að sonur mannsins sé að fermast um páskana og að engir peningar séu til á heimilinu til að halda veislu. Maðurinn eigi sér þó þá ósk að geta haldið veislu fyrir strákinn. Greint var frá þessu tilfelli á Facebook-síðunni fyrr í kvöld og Ásgerður segir viðbrögðin ekki hafa látið á sér standa. „Ég er komin með ljósmyndara til að taka fermingarmyndina,“ segir hún. „Síðan hafa aðrir boðið fram fimmtíu þúsund krónur til að fara með móðurinni og kaupa inn í baksturinn, ein búin að bjóðast til að baka. Þannig að vonandi endar þetta bara vel.“ Blaðamaður Vísis náði tali af Ásgerði aðeins um klukkustund eftir að færsla samtakanna birtist á Facebook. Hún segist mjög glöð yfir þessum viðbrögðum fólks. „Ég set aldrei neitt svona á Facebook nema manni sé alveg orðvant,“ segir hún. „Við fáum mjög margar sorgarsögur, mjög oft í viku. En það snýst ekki allt um fermingartímann.“ Áfram verður unnið að því að aðstoða fólkið á morgun en Ásgerður segir að Fjölskylduhjálp muni ekki koma að því að aðstoða fjölskylduna nema rétt við að kynna þau fyrir þeim sem vilja hjálpa. Facebook-færsluna, þar sem beðið er um hjálp, má sjá hér fyrir neðan.Innlegg frá Fjölskylduhjálp Íslands.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira