Gunnar svarar Gnarr um Guð Samúel Karl Ólason skrifar 17. febrúar 2015 09:15 Gunnar Þorsteinsson og Jón Gnarr. Vísir/Anton/Stefán
Gunnar Þorsteinsson, áður kenndur við Krossinn, segir það ekki rétt hjá Jóni Gnarr að Guð sé ekki til. Jón Gnarr gerði það að umfjöllunarefni sínu í Fréttablaðinu um helgina og Gunnar hefur birt nýja predikun á netinu undir titlinum Jón Gnarr og Guð. „Ég verð að játa að ég er ósammála þeirri staðhæfingu, en ég ber virðingu fyrir höfundinum,“ segir Gunnar. „Hann er merkilegur maður og hefur afrekað margt á stuttri ævi,“ segir Gunnar Þorsteinsson, í nýrri predikun á Facebooksíðu sinni. Gunnar bendir á það sem guð segir í sálmi 14 númer eitt. „Heimskinginn segir í hjarta sínu. Guð er ekki til.“ „Ég held að það sé mjög þröngsýnt sjónarmið að halda því fram að menn hafi skoðað alla hluti það vel að þeir geti lýst því yfir að Guð sé ekki til,“ segir Gunnar. Gunnar segist verða að undirstrika eitt. „Kristin kenning og kristindómurinn sem slíkur og kirkjan hafa ekki átt samleið svo öldum skiptir. Það er vandi okkar. Þessi skortur á samleið kirkju og kristni.“ Jón Gnarr segir í pistli sínum að trúarbrögð hafi verið öflug stjórntæki til að stjórna heilu þjóðunum. Að þau hafi verið íhaldssöm, ströng, andsnúin sköpunargleði, húmor, kynlífi og fleiru. Þá hafi þau jafnvel kúgað og gert lítið úr konum. „Þetta má alveg til sannsvegar færa þegar við skoðum sögu kirkjunnar. Ég verð að fá að verja kenninguna,“ segir Gunnar. „Kristindómurinn gerir ekki lítið úr konum. Í Kristi, segir postulinn, er ekki karl eða kona. Það er jöfnuður með karli og konu. Þegar sköpunarverkið er unnið afhendir Guð þeim báðum jafnræði yfir sköpunarverkinu.“ Gunnar segir syndina hafa bjagað myndina, en þegar hún hafi verið upphafin í Kristi þá eigi að ríkja jöfnuður þar í milli. Konur eigi að hafa sama brautargengi. „Að vísu hefur skort gríðarlega á það innan kirkjunnar, ég játa það og það er til skammar,“ segir Gunnar. Post by Gunnar Þorsteinsson. Gunnar bendir á aðra setningu úr grein Jóns: „Hugmyndin um persónulegan guð gengur gegn minni heilbrigðu skynsemi og upplifun og skilningi á heiminum" og segist vera á öndverðu meiði. „Þegar maður horfir á alheiminn. Horfir á óravíddir himins. Horfir inn í smæðina og sér þennan örfína mekanisma. Hvernig öllu er stýrt og stjórnað af stærðfræðilegri nákvæmni. Þá sé ég höfund.“ Gunnar segir að þegar hann horfi á sitt líf, neyð og þjáningu og hans leit af Guði, sem hafi verið ströng og löng. Sjái hann að Guð sé persónulegur og að hann elski hann sem persónu. „Þannig er Guð elskandi persónulega. Hann er ekki ópersónulegur kraftur. En hann hefur skapað og merki hans er alls staðar í sköpunarverkinu,“ segir Gunnar. „Ég þarf ekki að fara víða til að sjá að drottinn er höfundur lífs og þessarar sköpunar.“ Hann segir þó að maðurinn, sem umboðsmaður Guðs á jörðinni hafi gert hrapaleg mistök og sé að eyðileggja umhverfi sitt og sjálfan sig með uppreisn gegn vilja Guðs. Að lokum bendir Gunnar á setninguna: „Flestar framfarir í heiminum eru tilkomnar vegna mannvits, samvinnu og vísinda og oftar en ekki í andstöðu við trúarbrögðin“ úr pistli Jóns og segist ekki geta verið sammála henni. Þó hafi kreddur kirkjunnar heft ákveðnar framfarir. „En ef við lítum okkur nær og horfum á þjóðirnar í kringum okkur og íslenska þjóð og spyrjum: Hver er gæfa þessarar þjóða? Hver er styrkur þessara þjóða? Á hvaða grunni er þessi blessun sem yfir þessum þjóðum hvílir?“ Þá spyr Gunnar hvort að það sé vegna þess að krossinn sé í fánanum.
Tengdar fréttir Gunnar byrjar að predika eftir 4 ára hlé: „Það er þorsti eftir orði guðs“ Gunnar Þorsteinsson ákvað að byrja að predika á Facebook eftir hvatningu frá eiginkonu sinni. Hann segist velja umræðuefnið út frá því sem grípur hann hverju sinni en nú þegar hefur hann rætt sig, líf sitt, losta og fjölmiðla. 9. febrúar 2015 10:58 Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Sjá meira
Gunnar byrjar að predika eftir 4 ára hlé: „Það er þorsti eftir orði guðs“ Gunnar Þorsteinsson ákvað að byrja að predika á Facebook eftir hvatningu frá eiginkonu sinni. Hann segist velja umræðuefnið út frá því sem grípur hann hverju sinni en nú þegar hefur hann rætt sig, líf sitt, losta og fjölmiðla. 9. febrúar 2015 10:58