Innlent

Svikahrappar herja á samskiptamiðla

Höskuldur Kári Schram skrifar
Erlendir svikahrappar nýta sér í vaxandi mæli samfélagsmiðla á borð við Facebook og Tinder til að svíkja fé út úr grunlausum einstaklingum. Dæmi erum að íslensk fórnarlömb hafi tapað mörgum milljónum.

Lögreglan sendi í vikunni út viðvörun vegna þessara svikahrappa en þeir nýta sér samfélags- og stefnumótamiðla til að komast í samband við væntanleg fórnarlömb.

„Menn fá vinabeiðni og þar er ýmist huggulegur einhleypur, vel stæður karlmaður á fimmtugsaldri ef menn velja sér kvenfólk sem fórnarlömb. Sé markmiðið karlmaður er oft um unga stúlku að ræða,“ segir Hafliði Þórðarson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Svikahrapparnir taka sér langan tíma, oft marga mánuði, til að byggja upp traust áður en þeir byrja að svíkja út peninga. Oft segjast þeir hafa lent í tímabundnum fjárhagserfiðleikum eða þeir segja að þá vanti pening til að kaupa flugmiða til Íslands.

Hafliði segir að það geti tekið langan, langan tíma að fletta ofan af slíkum málum. Fólk hljóti oft töluvert tjón af. Það hafi jafnvel sent út mörg hundruð þúsunda króna, ef ekki milljónir. Nánast útilokað sé að ná peningunum til baka en lögreglunni hafi nú þegar borist nokkrar tilkynningar út af svona svikum.

„Ég held að við sjáum bara toppinn á ísjakanum í svona málum. Ég held að þegar fólk uppgötvar að það hafi verið haft að fíflum þá sé það feimið við að leita til lögreglu. Það er engin minnkun í því og við höfum áhuga á að vita af þessum málum þó við höfum takmarkaða getu til að fylgja þeim eftir. Við viljum vita hvað er í gangi þannig við getum allavega varað við þeim hlutum sem eru í gangi í fjársvikaheiminum,“ segir Hafliði.


Tengdar fréttir

Breytinga að vænta á Tinder

Notendur stefnumótaforritsins Tinder munu á næstunni geta borgað fyrir uppfærða útgáfu af forritinu sem mun bjóða upp á ýmsa nýja möguleika.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×