Hátt í 2.000 íbúðir í eigu ÍLS Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 21. janúar 2015 15:10 1.894 íbúðir víða um land - helmingur í söluferli. vísir/vilhelm
Íbúðalánasjóður á 1.894 íbúðir víða um land. Helmingur þeirra er í sölumeðferð, eða 916 og 889 í útleigu. Þetta kemur fram í skriflegu svari Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, við fyrirspurn Steinunnar Þóru Árnadóttur, þingmanns Vinstri grænna. Langflestar íbúðirnar eru á Suðurnesjum, eða 781. Þar af eru 418 í sölumeðferð, 347 í útleigu, 11 í undirbúningi fyrir sölu og 5 í vinnslu vegna leigu. Á höfuðborgarsvæðinu eru alls 341 íbúð í sölumeðferð og útleigu og á Suðurlandi eru þær 219. Á Vesturlandi eru 111 íbúðir í sölumeðferð og 73 í útleigu og á Austurlandi eru 87 í sölumeðferð og 84 í leigu.450 eignir til Kletts Færðar voru 450 eignir til leigufélagsins Kletts, dótturfélags ÍLS, og eru nú í rekstri hjá félaginu. Alls eru 433 íbúðir í útleigu.Í svari Eyglóar segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um að færa frekari eignir til leigufélagsins. Aðspurð hvort mótuð hafi verið stefna varðandi eignarhald og fjármögnun leigufélagsins segir hún eignarhaldið alfarið í höndum Íbúðalánasjóðs. Ákveðið hefði verið að fjármögnun félagsins verði af hálfu Íbúðalánasjóðs og það fjármögnunarferli hafi verið tilkynnt til ESA, eftirlitsstofnun EFTA. Svör frá ESA hafi þó enn ekki borist.Sjá einnig: Eygló Harðardóttir vill selja leigufélagið Klett ehf.Skortur á framboði leiguíbúðaÁrsskýrsla Leigjendaaðstoðarinnar var gefin út í dag. Þar segir að ljóst sé að talsvert skorti á að leigumarkaður á Íslandi sé í eðlilegu jafnvægi, að framboð fjölbreyttra leiguíbúða sé ekki nægjanlegt og að verulegur skortur sé á húsnæði til langtímaleigu. Draga þurfi úr vægi séreignarstefnunnar og auka valkosti í húsnæðismálum. „Því er mikil þörf á að efla starfsemi leigufélaga,“ segir í skýrslunni. Hins vegar sé jafnljóst að stjórnvöld hafi vilja til að koma á öruggum, heilbrigðum leigumarkaði.
Tengdar fréttir 40 sveitarfélög búa við skort á leiguhúsnæði Fjöldi fólks sem sótt hefur um félagslega leiguíbúð er langmestur í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum. 19. nóvember 2014 07:58 Hækka fjármagnslið félagslegra íbúða um 13% Búseti á Akureyri hefur ákveðið að leiga á félagslegum íbúðum hækki um 13 prósent á næsta ári. Er sú hækkun langt umfram verðbólgu. Fjárhagur Búseta kallaði á endurfjármögnun og hækkun leigutekna. Kemur sér illa fyrir tekjulága íbúa. 30. desember 2014 07:00 Þriggja ára bið eftir félagslegu húsnæði Akureyrarbær á tæplega þrjú hundruð félagslegar íbúðir til útleigu. 140 fjölskyldur og einstaklingar eru á biðlista eftir slíku húsnæði. 18. desember 2014 10:00 Tekur yfir eignir Leigufélags Íslands Sjóðir Gamma láta til sín taka á leigumarkaði. Almenna leigufélagið býður nú langtímaleigu, sólarhringsþjónustu við leigjendur og íbúðaskipti. Félagið hefur tekið yfir eignir Leigufélags Íslands. 19. nóvember 2014 07:00 Unnið að aðgerðum í þágu leigjenda Eygló Harðardóttir telur að leigjendur njóti góðs af skuldaniðurfærslunni. „Það er raunar töluverður hluti af skuldaleiðréttingunni sem fer í persónuafslátt vegna þess að fólk er ekki lengur með lán,“ sagði hún á þingi í dag. 13. nóvember 2014 13:44 Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Fleiri fréttir Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Sjá meira
40 sveitarfélög búa við skort á leiguhúsnæði Fjöldi fólks sem sótt hefur um félagslega leiguíbúð er langmestur í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum. 19. nóvember 2014 07:58
Hækka fjármagnslið félagslegra íbúða um 13% Búseti á Akureyri hefur ákveðið að leiga á félagslegum íbúðum hækki um 13 prósent á næsta ári. Er sú hækkun langt umfram verðbólgu. Fjárhagur Búseta kallaði á endurfjármögnun og hækkun leigutekna. Kemur sér illa fyrir tekjulága íbúa. 30. desember 2014 07:00
Þriggja ára bið eftir félagslegu húsnæði Akureyrarbær á tæplega þrjú hundruð félagslegar íbúðir til útleigu. 140 fjölskyldur og einstaklingar eru á biðlista eftir slíku húsnæði. 18. desember 2014 10:00
Tekur yfir eignir Leigufélags Íslands Sjóðir Gamma láta til sín taka á leigumarkaði. Almenna leigufélagið býður nú langtímaleigu, sólarhringsþjónustu við leigjendur og íbúðaskipti. Félagið hefur tekið yfir eignir Leigufélags Íslands. 19. nóvember 2014 07:00
Unnið að aðgerðum í þágu leigjenda Eygló Harðardóttir telur að leigjendur njóti góðs af skuldaniðurfærslunni. „Það er raunar töluverður hluti af skuldaleiðréttingunni sem fer í persónuafslátt vegna þess að fólk er ekki lengur með lán,“ sagði hún á þingi í dag. 13. nóvember 2014 13:44