Hækka fjármagnslið félagslegra íbúða um 13% Sveinn Arnarsson skrifar 30. desember 2014 07:00 Frá Akureyri. Félagslegar íbúðir á vegum Búseta á Norðurlandi hækka um 13 prósent á næsta ári, langt umfram verðlag.
Leiga á félagslegum íbúðum á Akureyri, sem eru í eigu Búseta á Akureyri, hækkar um 13 prósent þann 1. janúar næstkomandi. Þessi hækkun á leigu er langt umfram verðbólgu. Þetta tilkynnti Búseti í dreifibréfi til leigutaka þar sem fram kemur að forsendubrestur hafi orðið í fjármögnun á félagslegum leiguíbúðum félagsins. Leigjendur þessara íbúða eru oftar en ekki tekjulágir einstaklingar sem hafa lítið á milli handanna. Þeir íbúar sem Fréttablaðið náði tali af í gær sögðu þetta munu leggjast þungt á fjárhaginn hjá þeim. Tekjur þeirra eða húsaleigubætur hækkuðu ekki til jafns á við þessa hækkun. Tómas Veigar Sigurðarson, íbúi í einni slíkri íbúð segir þetta einnig ósanngjarna hækkun. „Leigan á félagslegum íbúðum Búseta hækkar miklu meira en á hinum almenna eignum búsetufélagsins. Nú er verið að færa skuldir þaðan yfir á félagslega kerfið.“Í leigusamningnum segir hinsvegar að íbúðin beri kvaðir vegna sértækra lánaskilmála. Hluti þeirra kvaða sem hvíla á íbúðunum eru þær að breytingar á leigugjaldi eru settar skorður og heimilar reglugerð frá árinu 2013 ekki hækkun umfram vísitölu. Benedikt Sigurðarson, framkvæmdastjóri Búseta á norðurlandi, segir ástæðu þess að félagið þurfi að grípa til svo mikilla hækkuna séu þvingandi aðgerðir Íbúðalánasjóðs. „Vegna þvingandi kröfu frá Íbúðalánasjoði eru þær veðsettar fyrir viðbótarlánum. Íbúðalánasjóður setur þessar kröfur um að veðsetja eignirnar upp á nýtt. Félagið þurfti á endurfjármögnun að halda og þurftum við að veðsetja þessar íbúðir til að standa straum af rekstri félagsins.“Sigurður Erlingsson Framkvæmdastjóri ÍbúðalánasjóðsSigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir forsvarsmenn Íbúðalánasjóðs og Búseta hittast á reglubundnum fundi og fara yfir málin. „Við áformum að hittast fljótlega á næsta ári og skoða lánasamninga við Búseta, líkt og við gerum við aðra viðskiptavini Íbúðalánasjóðs.“Benedikt bendir hins vegar á að félagið lækki á móti önnur gjöld þannig að hækkunin á þessum eignum verður ekki eins há. „Þetta eru upphaflega eignir með niðurgreiddum lánum og eru um það bil 40 prósent ódýrari en aðrar íbúðir. Eftir breytingu verða þær um 30 prósent ódýrari.“
Mest lesið Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent PlayStation 5 slær Xbox 360 við Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira