Þora ekki að bera vitni af ótta við Skeljagrandabróður Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. janúar 2015 15:40 Aðalmeðferð málsins mun fara fram í Héraðsdómi Reykjaness Vísir
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis að Kristján Markús Sívarsson þurfi ekki að víkja úr dómssal þegar þrjár 17 ára stúlku gefa skýrslu í máli lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu gegn honum. Saksóknari krafðist þess að Kristjáni yrði vísað úr þinghaldi á meðan stúlkurnar bæru vitni en Kristján er ákærður fyrir að hafa tvívegis slegið vagnstjóra í strætisvagni í andlitið með þeim afleiðingum að tönn í honum brotnaði. Átti atvikið sér stað í mars 2014. Samkvæmt skýrslum stúlknanna hjá lögreglu var Kristján mjög ógnandi þegar umrædd líkamsárás átti sér stað og vitnin orðið hrædd. Þær hafi síðan séð í blöðunum hver hann væri og töldu að sér stæði ógn af honum þar sem hann væri þekktur ofbeldismaður. Í dómi héraðsdóms, sem Hæstiréttur vísar í, er ekki fallist á þennan málatilbúnað ákæruvaldsins, meðal annars á þeim forsendum að vitnin væru ekki brotaþolar í meintri líkamsárás og ekki var sýnt fram á nein samskipti þeirra við ákærða á vettvangi árásarinnar eða síðar. „Ekki verður af gögnum málsins ráðið að nærvera ákærða geti orðið nefndum vitnum sérstaklega til íþyngingar. Engin vottorð hafa verið lögð fram svo sem frá sálfræðingum um að nærvera ákærða gæti haft áhrif á framburð vitnanna. Hefur að mati dómsins ekki verið sýnt fram á með nægjanlegum hætti eins og máli þessu er háttað, að skýrslutakan sé vitnunum sérstaklega til íþyngingar og kunni að hafa áhrif á framburð þeirra.“ Því var kröfunni hafnað og má Kristján vera í dómssal þegar stúlkurnar bera vitni. Dóm Hæstaréttar má sjá í heild sinni hér.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira