Stefna að því að varpa ljósi á fornlíffræði rostunga Stefán Árni Pálsson skrifar 26. janúar 2015 17:19 Prófessor Ólafur S. Andrésson stofustjóri (t.h.) og Hilmar J. Malmquist safnstjóri (t.v.). Mynd/Náttúruminjasafn Íslands
Náttúruminjasafn Íslands og Líffræðistofa Háskóla Íslands hafa gert með sér samning um rannsóknasamstarf á fornlíffræði rostunga við Ísland. Samningurinn var undirritaður í Loftskeytastöðinni föstudaginn 23. janúar síðastliðinn. Þetta kemur fram á vefsíðu Náttúruminjasafns Íslands. Þar segir að meginmarkmið rannsóknarinnar, sem felur m.a. í sér aldursgreiningu beina, svipfarsgreiningu þeirra og erfðagreiningu, sé að varpa ljósi á fornlíffræði rostunga hér við land, útskýra aldur þeirra, jarðsögulega stöðu, líffræði og hugsanleg tengsl við rostungsstofna annar staðar í norðanverðu Atlantshafi. Gagnasafnið sem liggur til grundvallar rannsókninni nær til beinaleifa um 50 rostunga sem fundist hafa hér við land á undaförnum 100 árum eða svo. Kveikjan að rannsóknarverkefninu er beinafundur rostunga í fjöru í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Þrjár hauskúpur rostunga með skögultönnum fundust með skömmu millibili árið 2008 í fjörunni í landi Barðastaða, Staðarsveit, Snæfellsnesi. Slíkur fundur er mjög óvenjulegur og kann að benda til þess að rostungar hafi haft látur á þessum slóðum fyrr á tímum og/eða að skipstapi hafi átt sér þar stað. Náttúruminjasafnið fékk að gjöf eina hauskúpuna sem fannst 2008 eins og Vísir greindi frá árið 2013. Að verkefninu koma einkum dr. Arnar Pálsson dósent við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands og prófessor Snæbjörn Pálsson við sömu deild. Þá tengjast verkefninu dr. Hreggviður Norðdahl jarðfræðingur og dr. Árný Sveinbjörnsdóttir jarðefnafræðingur, bæði við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, og dr. Bjarni F. Einarsson forleifafræðingur við Fornstofuna.
Mest lesið „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Erlent Gestafjöldi verður ekki takmarkaður við fimm þúsund Innlent „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Erlent Ráðist á ungan dreng með piparúða Innlent Gaut ellefu íslenskum fjárhundum sem er heimsmet Innlent Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Innlent Litir víkja fyrir nútímanum víðast hvar Innlent Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Erlent „Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing?“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Heimilisleysi á Íslandi Ráðist á ungan dreng með piparúða „Alltaf hætta á stigmögnun með þá utanríkisstefnu sem Rússland rekur“ Gestafjöldi verður ekki takmarkaður við fimm þúsund Þurfi að útkljá hver er að misskilja hvern Gaut ellefu íslenskum fjárhundum sem er heimsmet „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Litir víkja fyrir nútímanum víðast hvar Málið verði flutt upp á nýtt með nýju vitni Með Alzheimer en gæti beðið í fjögur ár Braut á ungri bróðurdóttur sinni sem bjó á heimilinu Nauðgari hélt því fram að Snapchat-skilaboð væru ekki frá honum Jón Gunnarsson biðst afsökunar á orðum sínum Borgin taki til sín fimmtung launahækkunar barnafólks Almannatryggingamálinu frestað en engar breytingar í farvatninu Ótrúlegt hve fáar virkjanir komist í gegnum rammaáætlun Tekur tímabundið við Framsóknarflokknum Hafnar því að strandað hafi á honum að bregðast við menguninni Rúta hafnaði utan vegar og valt Vísbendingar um að þúsund börn á Íslandi sæki ekki skóla Niðursveiflan á vinnumarkaði sé mjög djúp „Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing?“ Landsvirkjun fagnar fleiri nýtingarkostum í rammaáætlun Refsað fyrir að loka á konu og keyra yfir fætur hennar Hræddur um að öfugur hvati leiði til fjölgunar öryrkja Ekki viss um að hægt sé að lappa upp á samband Evrópu og Bandaríkjanna Gengu tíu kílómetra til að geta óskað eftir aðstoð Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Bein útsending: Umhverfið í hnattrænu samhengi Eigi að „brenna barnaverndarkerfið til grunna og byrja aftur“ Sjá meira