Dauði hrossanna ekki rakinn til vanrækslu Stefán Árni Pálsson skrifar 13. janúar 2015 09:43 12 hross fundust drukknuð í Bessastaðatjörn 20. desember 2014. vísir/vilhelm
Matvælastofnun hefur lokið rannsókn á drukknun hrossa í Bessastaðatjörn. Að mati stofnunarinnar er slysið ekki rakið til vanrækslu umráðamanna á reglum um velferð hrossa en þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun. Matvælastofnun rannsakaði aðbúnað og umhirðu hrossa í beitarhólfi á vegum hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi, sem telst vera ábyrgðaraðili hrossanna í þessu tilviki. Tilefnið var að 12 hross fundust drukknuð í Bessastaðatjörn 20. desember 2014. „Alls höfðu 55 hross verið sett í beitarhólfið til haustbeitar frá 1. september 2014 og var venjan að smala hrossunum síðasta laugardag fyrir jól á hverju ári. Framkvæmd var skoðun á 14 hrossum sem deilt höfðu beitarhólfinu með hestunum sem drápust til að meta ástand hrossanna. Ástand hrossanna gaf ekki til kynna að skort hafi á beit, vatn eða næringu fyrir hrossin í beitarhólfinu,“ segir í tilkynningunni. Þar kemur einnig fram að sunnan megin í landinu sé trjábelti og gamlar mannvistarleifar nálægt hliðinu við sjóinn að vestanverðu. „Náttúrulegt skjól er því til staðar í beitarhólfinu en skv. reglugerð nr. 910/2014 um velferð hrossa skulu hross sem ganga úti geta leitað skjóls fyrir veðri og vindum.“ Það sé skylt skv. sömu reglugerð að hafa eftirlit með útigangi hrossa að lágmarki einu sinni í viku en auk þess er kveðið á um aukið eftirlit t.d. við slæmar veðuraðstæður. „Að sögn forráðamanna Sóta er litið til hrossanna á 3 – 8 daga fresti yfir beitartímann af hálfu hestamannafélagsins Sóta auk þess sem eigendur líta af og til eftir hestum sínum. Fyrir smölun 20. desember hafði verið litið til hrossanna 13. og 14. desember skv. upplýsingum Sóta. Þá voru öll hrossin í haganum og ekkert óeðlilegt að sjá að mati þeirra sem kíktu á hrossin.“ Alla jafna standa hestar í góðu ástandi vel af sér óveður að vetrarlagi og er fáheyrt að slys af þessum toga eigi sér stað. „Óljóst er hvað hefur valdið því að hrossin ráku út á ísinn en svo virðist sem að hættulegar aðstæður hafi skapast við það að tjörnina lagði, með ótraustum ís snævi lögðum, samhliða miklu veðuráhlaupi á dimmasta tíma ársins. Hins vegar verður ekki séð að umráðamenn dýranna hafi gerst brotlegir á ákvæðum reglugerðar um velferð hrossa. Matvælastofnun hefur birt skýrslu um niðurstöður rannsóknarinnar sem er aðgengileg hér að neðan.“
Tengdar fréttir Tólf hestar drukknuðu í Bessastaðatjörn Svo virðist sem hestarnir hafi farið út á ísinn og hann látið undan. Einar Bollason hjá Íshestum segir málið skelfilegt og að starfsmenn séu allir í losti vegna málsins. 21. desember 2014 14:07 „Þetta er brot á dýraverndarlögum“ Lögfræðingur með dýrarétt sem sérsvið segir að eigendur og umsjónarmenn hestanna sem drukknuðu í Bessastaðatjörn í síðustu viku hafi orðið uppvísir að hirðu- og kæruleysi. 23. desember 2014 13:16 Búið að hífa öll hrossin upp Farið verður með þau á urðunarstöðina við Álfsnes. 22. desember 2014 13:23 Hestarnir mögulega dregnir upp með þyrlu Hugsanlegt er að hestarnir í Bessastaðatjörn verði hífðir upp með þyrlum í dag 22. desember 2014 09:22 „Það líður öllum vel í hjartanu núna“ Aðeins tók um hálfa klukkustund að hífa upp tólf hross sem drukknuðu í Bessastaðatjörn á dögunum. 22. desember 2014 19:57 Matvælastofnun skoðar hvers vegna tólf hestar drukknuðu Hræin voru dregin upp úr tjörninni í gær. 23. desember 2014 09:15 Rannsókn á lokametrunum Rannsókn á tildrögum þess að tólf hestar drukknuðu í Bessastaðatjörn þann 21. desember er á lokametrunum. 13. janúar 2015 07:00 Stefna að því að sækja hrossin á morgun Tólf hestar fundust drukknaðir í Bessastaðatjörn fyrr í dag. Hestarnir hafa farið út á ísinn einhvern síðustu daga og ísinn gefið eftir. 21. desember 2014 22:10 Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Barist á hafi úti Erlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Sjá meira
Tólf hestar drukknuðu í Bessastaðatjörn Svo virðist sem hestarnir hafi farið út á ísinn og hann látið undan. Einar Bollason hjá Íshestum segir málið skelfilegt og að starfsmenn séu allir í losti vegna málsins. 21. desember 2014 14:07
„Þetta er brot á dýraverndarlögum“ Lögfræðingur með dýrarétt sem sérsvið segir að eigendur og umsjónarmenn hestanna sem drukknuðu í Bessastaðatjörn í síðustu viku hafi orðið uppvísir að hirðu- og kæruleysi. 23. desember 2014 13:16
Búið að hífa öll hrossin upp Farið verður með þau á urðunarstöðina við Álfsnes. 22. desember 2014 13:23
Hestarnir mögulega dregnir upp með þyrlu Hugsanlegt er að hestarnir í Bessastaðatjörn verði hífðir upp með þyrlum í dag 22. desember 2014 09:22
„Það líður öllum vel í hjartanu núna“ Aðeins tók um hálfa klukkustund að hífa upp tólf hross sem drukknuðu í Bessastaðatjörn á dögunum. 22. desember 2014 19:57
Matvælastofnun skoðar hvers vegna tólf hestar drukknuðu Hræin voru dregin upp úr tjörninni í gær. 23. desember 2014 09:15
Rannsókn á lokametrunum Rannsókn á tildrögum þess að tólf hestar drukknuðu í Bessastaðatjörn þann 21. desember er á lokametrunum. 13. janúar 2015 07:00
Stefna að því að sækja hrossin á morgun Tólf hestar fundust drukknaðir í Bessastaðatjörn fyrr í dag. Hestarnir hafa farið út á ísinn einhvern síðustu daga og ísinn gefið eftir. 21. desember 2014 22:10