Málverkastuldur í Reykjavík: „Verkið er mér ómetanlegt“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 16. janúar 2015 07:38 Sigrún og listaverkið.
Málverki var stolið frá myndlistakonunni Sigrúnu Sigurðardóttur í nóvember síðastliðnum. Verkið hafði verið til sýnis á listasýningu sem Sigrún hélt í húsnæði Domus Medica við Egilsgötu í Reykjavík en þangað virðist hafa ratað inn þjófur sem í kjölfarið tók verkið ófrjálsri hendi. Verkið er Sigrúnu ómetanlegt en hún hafði eytt rúmu ári í að mála það. Um er að ræða stærðarinnar málverk af Bessastöðum. „Mér finnst nánast eins og ég hafi misst barnið mitt. Ég lagði allt mitt í þetta málverk og þykir afskaplega vænt um það. Ég hef varla getað notið jólanna ég sakna þess svo og þykir þetta svo sárt,“ segir Sigrún.Málverkinu sem stolið var.Hún tilkynnti málið til lögreglu og fékk að líta á myndir úr öryggismyndavélum. „Myndavélarnar sýna að um leið og hann kom inn tók hann upp myndavél og tók mynd af verðlistanum sem hékk uppi á vegg. Þannig að þetta var alveg skipulagt hjá honum. Hann vafraði síðan um í smá stund og beið eftir að enginn væri á ferð og tók málverkið,“ segir Sigrún en myndin var til sölu á 380 þúsund krónur, hennar allra dýrasta listaverk. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sigrún verður fyrir slíku óláni en á sama stað fyrir þremur árum var öðru málverki frá henni stolið. Blessunarlega fannst það verk aftur. „Það er hræðilegt ef listamenn geta ekki haldið sýningar án þess að hlutunum verði rænt,“ segir hún. „Verkið er mér ómetanlegt og ég óska mér þess svo heitt að fá það aftur í hendurnar.“ Sigrún segir að maðurinn sem sást hnupla verkinu sé á sextugsaldri, meðalmaður á hæð með grásprengt skegg, heldur bústinn. Á myndunum var hann með hvíta derhúfu. Hún biðlar til allra þeirra sem telja sig hafa vitneskju um málið að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000. Innlegg frá Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu. Hér er maðurinn sem um ræðir.
Tengdar fréttir Kjarvalsmálverki stolið á Kjarvalsstöðum Málverki eftir Kjarval var stolið um hábjartan dag á Kjarvalsstöðum í gær þegar karlmaður gekk inn á safnið laust eftir klukkan tvö og tók eitt af verkum listamannsins sem var í sýningarsal og hafði á brott með sér ásamt öðrum manni. 10. maí 2009 09:16 Leitað að bíræfnum málverkaþjófum Málverk eftir Vincent Van Gogh sem metið er á um 6 milljarða hefur ekki enn komist í leitirnar. Talið er að bíræfnir þjófar hafi stolið verkinu. 22. ágúst 2010 13:28 Kjarvalsmálsverkið 5 til 7 milljóna króna virði Tryggvi Páll Friðriksson, uppboðshaldari hjá Gallerí Fold, áætlar að verk eftir Jóhannes Kjarval sem stolið var á Kjarvalsstöðum í gær sé 5-7 milljóna króna virði. Hann telur að virði þess hafi verið ennþá meira þegar góðærið var hvað mest. 10. maí 2009 14:49 Málverk sem fannst í rusli selt á 60 milljónir kr. Málverki sem stolið var fyrir 20 árum og fannst síðar í ruslahaug á götu í New York var selt á uppboði í vikunni fyrir eina milljón dollara eða 60 milljónir króna. 21. nóvember 2007 08:37 Öryggismál í skoðun eftir skemmdarverk á Monet Öryggismál á frönskum söfnum er nú til endurskoðunnar þar í landi eftir að þekkt verk á þeim hafa ítrekað verið skemmd eða þeim stolið. Síðasta dæmið um skemmdarverk á þekktu klassísku málverki átti sér stað á Musee d' Orsay safninu í gærmorgun. 8. október 2007 07:55 Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira
Kjarvalsmálverki stolið á Kjarvalsstöðum Málverki eftir Kjarval var stolið um hábjartan dag á Kjarvalsstöðum í gær þegar karlmaður gekk inn á safnið laust eftir klukkan tvö og tók eitt af verkum listamannsins sem var í sýningarsal og hafði á brott með sér ásamt öðrum manni. 10. maí 2009 09:16
Leitað að bíræfnum málverkaþjófum Málverk eftir Vincent Van Gogh sem metið er á um 6 milljarða hefur ekki enn komist í leitirnar. Talið er að bíræfnir þjófar hafi stolið verkinu. 22. ágúst 2010 13:28
Kjarvalsmálsverkið 5 til 7 milljóna króna virði Tryggvi Páll Friðriksson, uppboðshaldari hjá Gallerí Fold, áætlar að verk eftir Jóhannes Kjarval sem stolið var á Kjarvalsstöðum í gær sé 5-7 milljóna króna virði. Hann telur að virði þess hafi verið ennþá meira þegar góðærið var hvað mest. 10. maí 2009 14:49
Málverk sem fannst í rusli selt á 60 milljónir kr. Málverki sem stolið var fyrir 20 árum og fannst síðar í ruslahaug á götu í New York var selt á uppboði í vikunni fyrir eina milljón dollara eða 60 milljónir króna. 21. nóvember 2007 08:37
Öryggismál í skoðun eftir skemmdarverk á Monet Öryggismál á frönskum söfnum er nú til endurskoðunnar þar í landi eftir að þekkt verk á þeim hafa ítrekað verið skemmd eða þeim stolið. Síðasta dæmið um skemmdarverk á þekktu klassísku málverki átti sér stað á Musee d' Orsay safninu í gærmorgun. 8. október 2007 07:55