VR stefnir stjórvöldum fyrir stjórnarskrárbrot Heimir Már Pétursson skrifar 8. janúar 2015 19:30
Verslunarmannafélag Reykjavíkur hefur stefnt ríkinu fyrir að hafa brotið stjórnarskrárvarinn rétt á félagsmönnum með skerðingu á atvinnuleysisbótarétti um áramótin. Krafist er flýtimeðferðar á málinu enda kippi skerðingin fótunum undan fjölda félagsmanna. Í nýsamþykktum fjárlögum var réttur fólks til atvinnuleysisbóta skertur um sex mánuði, úr þremur árum í tvö og hálft ár. Málið mætti mikilli andstöðu frá verkalýðshreyfingunni á meðan umræður um fjárlagafrumvarpið stóðu yfir á Alþingi og strax hinn 2. janúar stefndi VR ríkinu vegna málsins. VR segir að atvinnuleysisbótarétturinn sé eign launafólks. En af þeim 500 einstaklingum sem misstu bótaréttinn um áramótin er 81 félagsmaður í VR.En hvað er það sem þið teljið að ríkisvaldið hafi brotið með þessari lagasetningu?„Það er fyrst og síðast þessi afturvirkni. Þetta fólk er búið að öðlast ákveðinn bótarétt þegar það fer á atvinnuleysisbætur sem þá er ljóst að er þriggja ára tímabil,“ segir Ólafía B. Rafnsdóttir formaður VR. Það sé líka mikill misskilningur að allt það fólk sem missti réttinn um áramót hafi verið samfleytt án atvinnu í tvö og hálft ár. Fólk geti hafa haft vinnu tímabundið á bótatímanum, því fólk þurfi að hafa verið á vinnumarkaðnum í 24 mánuði til að öðlast fullan rétt á nýjan leik. Því sé verið að taka af fólki réttindi með afturvirkum hætti. Ríkisstjórnin sem sat árið 2006 stytti bótatímabilið úr fimm árum í þrjú. „Þegar þetta var gert áður var það gert með fyrirvara og fólk fékk aðlögunartíma en núna er aðlögunartíminn enginn. Það er hreinlega verið hér að kippa fótunum undan fullt af fólki með skammarlegum hætti,“ segir Ólafía. Ríkisstjórninni sé óheimilt að breyta þessum rétti á ósanngjarnan, íþyngjandi og afturvirkan hátt með vísan til 76. greinar stjórnarskrárinnar. Ekkert samstarf hafi verið haft við verkalýðshreyfinguna. Það er tryggingagjaldið sem stendur undir atvinnuleysisbótum. „Menn verða að átta sig á því að tryggingagjaldið er reiknað út frá stofni okkar sem erum á vinnumarkaði. Það erum við sem erum að greiða þessar atvinnuleysisbætur. Þannig að ef ríkið ætlar að spara þarf það alla vega að gera það með sannanlegum hætti. Þannig að það sé trúverðugleiki á bakvið það og það sýni ekki þessa grimmd að gera það með svo stuttum fyrirvara,“ segir Ólafía B. Rafnsdóttir.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Sjá meira