Íslendingur í Kína yfirheyrður af lögreglu vegna uppistands Bjarki Ármannsson skrifar 10. júlí 2015 11:34 „
Ég hef aldrei upplifað neitt svona áður,“ segir Helgi Steinar Gunnlaugsson, nemi við háskóla í Peking í Kína, sem var yfirheyrður af lögreglu í gær vegna gruns um að óæskileg ummæli um kínversk stjórnvöld væru látin falla á uppistandskvöldi sem hann skipulagði. Að sögn Helga voru hann og félagar hans beðnir um að framvísa skilríkjum og þurftu að hætta við sýninguna þegar hún var aðeins hálfnuð.Tekinn tali af óeinkennisklæddum lögregluþjónum Helgi hefur búið í Kína í rúmlega þrjú ár og er nú í meistaranámi í alþjóðasamskiptum í Peking. Hann, ásamt nokkrum öðrum útlendingum, hefur dundað sér við að flytja uppistand öðru hverju um reynslu sína af Kína og Kínverjum. Í gærkvöldi átti að fara fram uppistandssýning á ensku, sem Helgi skipulagði, á bar þar sem hópurinn var að koma fram í fyrsta sinn. „Þetta er búið að ganga mjög vel,“ segir Helgi um sýningarnar hingað til. „Við erum eiginlega búin að fylla barinn öll kvöld sem við höfum verið með þetta og á þremur árum hefur aldrei verið neitt vesen. Fyrr en í gær.“ Sýningin fór vel af stað en um tíu mínútum áður en Helgi átti að fara á svið tjáði eigandi honum að tveir menn vildu tala við hann. Þeir reyndust vera óeinkennisklæddir lögregluþjónar á vegum kínversku útlendingaeftirlitsins. „Þeir spurðu mig bara strax: „Hvað ertu að gera hérna, hver sér um þetta og hvernig kom þetta upp á borðið?“ Ég útskýrði að þetta væri bara uppistand, hópur útlendinga sem hittist reglulega og talar um reynslu okkar í Kína og allt sem brennur okkur á hjarta. Og þeir spyrja þá: „Hvað nákvæmlega er fólk að segja?“Öryggisgæsla við Torg hins himneska friðar í Peking. Ritskoðun stjórnvalda er mjög algeng í Kína.Vísir/AFPLögregluþjónarnir sögðu að þeim hefði borist tilkynning um að verið væri að segja slæma hluti um kínverska kommúnistaflokkinn. Upphófst þá langt samtal með eigendum barsins, sem sögðu Helga að fara eftir öllu sem lögreglan skipaði. Helgi og félagar hans voru beðnir um að sýna vegabréf og lögregluþjónarnir hótuðu því að láta loka barnum.Ekki verið að segja neitt stuðandi „Eftir svona hálftíma sögðu þeir að við mættum vera með uppistand aftur í næstu viku en við þyrftum að vera búnir fyrir ákveðinn tíma og ef að fleiri tilkynningar bærust um að við værum að tala um kommúnistaflokkinn eða Kína, þá myndu þeir hjóla í okkur,“ segir Helgi. „Við ákváðum að gefa þessu bara mánaðarpásu frá þessum stað.“ Sýningin var þannig blásin af eftir að aðeins fimm af ellefu höfðu fengið að fara á svið. Helgi segir uppistandarana tala um hitt og þetta en engin hafi verið að segja neitt stuðandi um kínversk stjórnvöld. „Við tölum aðallega um eitthvað fyndið sem við höfum lent í, til dæmis við að kenna,“ segir Helgi, en margir útlendinganna eru enskukennarar. „Ég er eiginlega sá eini sem talar um stjórnmál, af því að það er það sem ég er að læra. En það er ekkert á neinn grimman hátt. Þetta er alltaf bara eitthvað fyndið úr fréttunum og svona.“ Helgi segir að uppistandskvöldin þeirra séu tæknilega séð öll ólögleg, en ekkert sé vanalega gert í því þar sem þeir eru útlendingar. Hann segir að hugmyndin að baki uppistandi eins og við þekkjum það sé nær óþekkt í Kína og sýningin gæti þess vegna hafa vakið upp grunsemdir. Jafnframt séu yfirvöld mögulega órólegri núna þegar illa gengur en oft áður. „Einn félagi minn hér í Kína þekkir aðeins betur til og hann segir að þetta gæti mögulega tengst verðbréfahruninu,“ segir Helgi. „Þegar eitthvað svona stórt gerist í Kína, eða á mikilvægum dagsetningum, þá eykst oft gæslan hér í borginni.“
Mest lesið Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Jói Fel málar með puttunum Innlent Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Innlent Fleiri fréttir „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Sjá meira