Hrun í fuglastofnum staðfest enn og aftur svavar hávarðsson skrifar 20. apríl 2015 07:00 Kríuungi. Það er ungviðið sem fer verst út úr ætisskortinum á síðustu árum. fréttablaðið/stefán
Rannsóknir vegna framkvæmda sem tengjast Landeyjahöfn staðfesta fyrri niðurstöður um breytingar á fuglastofnum á landsvísu. Stofnar sílafugla eins og kjóa, skúms, kríu, sílamáfs og svartbaks á rannsóknasvæðinu hafa hrunið eða eiga mjög undir högg að sækja. Umrædd rannsókn var unnin af starfsmönnum Náttúrufræðistofnunar Íslands (NÍ) á árunum 2007 til 2014 að ósk Vegagerðar ríkisins og laut að fuglalífi og gróðurfari.Kristinn Haukur SkarphéðinssonKristinn Haukur Skarphéðinsson, sviðsstjóri dýrafræði hjá NÍ, segir að tveir stórir atburðir hafi sett mjög svip sinn á rannsóknina; ætisskortur hjá fugli við Suður- og Suðvesturland og eldgosið í Eyjafjallajökli. Ekki virðast hafa orðið merkjanlegar breytingar hjá fuglastofnum á svæðinu sem rekja megi til vegagerðar og efnisnáms en of snemmt sé að fullyrða nokkuð um slíkt til lengri framtíðar litið, enda erfitt að meta slík áhrif ef einhver eru á fáum athugunarárum. „En þessar afgerandi niðurstöður sem rannsóknin sýnir, og yfirskyggja allt annað, eru tilkomnar af því ástandi sem hefur ríkt hér á landi í um áratug – og áhrifin á lunda eru einna best kynnt. Ástandið vegna ætisbrests hjá sjófuglum var að hefjast þegar við hófum rannsóknina. Öllum þessum fuglum sem eru háðir sjónum og verpa hérna í ríkum mæli hefur gengið illa,“ segir Kristinn. Spurður nánar um hrun stofnanna segir Kristinn að ekkert gangi hjá mörgum tegundum fugla að koma upp ungum – þar koma áhrifin fram. Varp hefjist ekki eða mjög seint og ungar drepist áður en þeir komast almennilega á legg. „Það er mjög farið að sverfa að hjá þessum stofnum, án þess að það sjáist með afgerandi hætti. Stór hluti þessara sjófuglastofna eru geldfuglar og erfitt að telja þá. Þegar tegund kemur ekki upp ungum í áratug, eins og lundinn í Vestmanneyjum þar sem þriðjungur stofnsins er, þá gengur hratt á stofnana. En það má leiða að því líkur að þessum stofnum öllum hnigni mjög ört. Langflestir sjófuglastofnar eru í miklum vanda og þannig hefur það verið í nokkur ár,“ segir Kristinn. Ástand sem þetta hefur komið upp áður, til dæmis á síðustu öld eins og Erpur Snær Hansen, sviðsstjóri vistfræðirannsókna hjá Náttúrstofu Suðurlands, hefur sýnt fram á í sínum rannsóknum á lunda. Tengist ætisskorturinn hlýnun.
Mest lesið Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Fleiri fréttir Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Sjá meira