Skortur á íbúðum er farinn að hamla vexti Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 20. apríl 2015 07:00 Dagur B. Eggertsson Vísir
Íbúðaskortur er farinn að hamla vexti höfuðborgarsvæðisins, en um síðustu áramót vantaði 1.200 íbúðir á húsnæðismarkaðinn. Þetta kemur fram í Þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2015-2018 sem kynnt var sveitarstjórnarfólki á föstudag. Þar kemur einnig fram að uppbygging hefur verið hægari hjá sveitarfélögunum en vonast var til. Þróunaráætlunin er hluti af vinnu við Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins til ársins 2040. „Ætla má að uppbygging íbúða verði heldur hægari en sveitarfélögin gera ráð fyrir enda gætir nokkurrar bjartsýni með fjölda íbúða sem fara í byggingu á árunum 2015 og 2016,“ segir í áætluninni.Bryndís HaraldsdóttirFólksfjölgun á höfuðborgarsvæðinu er hægari en á Suðurnesjum, en þar var hún 2,1 prósent árið 2014. Á höfuðborgarsvæðinu er hún 1,2 prósent á sama tíma, en aðeins 0,5 prósent í Reykjavík sjálfri. „Það hefur verið þannig frá 1960 að vaxtarhraðinn í Reykjavík hefur verið aðeins minni heldur en hjá nágrannasveitarfélögunum og núna virðist það aftur vera að gerast varðandi höfuðborgarsvæðið í heild og næstu nágranna, að það er heldur meiri hraði,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Hann segir ekki bara verða að mæta venjulegri eftirspurn heldur hafi þörfin hlaðist upp. „Við erum í skuld gagnvart árunum þegar allt var í frosti eftir hrun, þannig að það vantar fleiri íbúðir. Það er ástæðan fyrir því að við í Reykjavík og önnur sveitarfélög líka erum að leggja áherslu á að hraða uppbyggingu.“ Bryndís Haraldsdóttir, formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar, segir byggingu nýrra íbúða hafa farið hægar af stað eftir hrun en vonast var eftir. Að einhverju leyti skýrist það af því að fólk, sérstaklega ungt fólk, eigi í erfiðleikum með fjármögnun. „Ég ímynda mér að það sé einhver smá flöskuháls í fjármögnunarmálum. Það fari því allt af stað ef það verður leyst með einhverjum hætti að ungt fólk geti tekið lán fyrir fyrstu íbúðinni sinni.“ Dagur segir skilaboðin vera skýr: „Nú þurfa bara allir að átta sig á því að svona er staðan og það þarf að byggja þessar íbúðir og það er ekki eftir neinu að bíða með það.“
Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Innlent Fleiri fréttir Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar Sjá meira