Líkamsárásum á höfuðborgarsvæðinu fjölgar enn á milli ára Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. júlí 2015 16:01 Meirihluti ofbeldisbrota á sér stað að kvöld-og næturlagi um helgar og er vettvangur brotanna oftar en ekki miðbær Reykjavíkur. vísir/kolbeinn tumi
Alls voru 840 líkamsárásir tilkynntar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á síðasta ári en þar af voru rúmlega 150 árásir sem teljast alvarlegar. Til samanburðar var tilkynnt um alls 750 líkamsárásir árið 2013 en ofbeldisbrotum stöðugt fjölgað frá árinu 2011. Þetta kemur fram í ársskýrslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem gefin var út í dag. Líkt og áður á meirihluti ofbeldisbrota sér stað að kvöld-og næturlagi um helgar og er vettvangur brotanna oftar en ekki miðbær Reykjavíkur. Eitt morð var framið á höfuðborgarsvæðinu í fyrra þegar maður varð eiginkonu sinni að bana í íbúð þeirra í fjölbýlishúsi í Breiðholti. „Eiginkonan var látin þegar að var komið en strax vaknaði grunur um að dauða hennar hefði borið að með saknæmum hætti. Eiginmaðurinn var handtekinn í íbúðinni, en börnunum komið í umsjá barnaverndaryfirvalda. Við yfirheyrslur þótti frásögn mannsins af því sem gerðist ekki trúverðug, en rannsókn málsins var viðamikil eins og ávallt í málum sem þessum. Svo fór að eiginmaðurinn var ákærður fyrir að bregða reim úr hettupeysu um háls eiginkonunnar og þrengja að með þeim afleiðingum að hún lést,“ segir í ársskýrslu lögreglunnar. Hegningarlagabrotum á höfuðborgarsvæðinu fækkar milli ára og var hlutfallslega mest fækkun kynferðisbrota. Þó er tekið fram í skýrslunni að óvenju mikill fjöldi slíkra mála var til rannsóknar hjá lögreglunni árið 2013. Ekkert banaslys varð í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu árið 2014. Umferðarslysum fækkaði þó ekki heldur fjölgar á mili ára; voru að meðaltali sjö á viku árið 2013 en voru að meðaltali átta í viku í fyrra.
Mest lesið Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Erlent Lögregla í eltingaleikjum við afbrotamenn Innlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Innlent Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Erlent „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Innlent Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Erlent Fleiri fréttir Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla í eltingaleikjum við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Ráðherra situr fyrir svörum, gleðitíðindi og konan sem hafði aldrei heyrt um handbolta Seinka sýningum fyrir leikinn Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Á fjórða hundrað vilja á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Svona mun Suðurlandsbraut líta út Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Ljósið flytur í Grafarvog Launin lækkuð um 97 prósent en ekki afnumin „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Viðreisnarfélögum fjölgað um helming fyrir prófkjör Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Guðjón endurkjörinn og Simon líka Mannabreytingar samráðsfunda eins og tiltekt á jólakortalista Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Sjá meira