Dreifa upplýsingum um farþega Samúel Karl Ólason skrifar 27. júní 2015 11:53 Í hópnum var að finna umræðu um að forðast tiltekinn farþega þar sem hann var smitaður af HIV. Vísir/Vilhelm
Hópur leigubílsstjóra hefur verið kærður til Persónuverndar vegna lokaðs Facebook-hóps. Þar eru mennirnir sagðir hafa dreift upplýsingum um farþega sína. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Leigubílstjórarnir eru sagðir hafa deilt leynilegri myndbandsupptöku, myndum af skilríkjum farþega, upplýsingum um að leigubílstjórar taki síma og vegabréfi í „pant“ og myndum af farþegum. Þar að auki segir í Morgunblaðinu að þar sé að finna umræður um tiltekinn farþega og að hann beri að varast, þar sem hann er smitaður af HIV. Persónuvernd barst kæra í gær og hefur hún ekki verið tekin fyrir. Framkvæmdastjóri Hreyfils-Bæjarleiða segir við Morgunblaðið að hópurinn tengist stöðinni ekki með nokkrum hætti og að forsvarsmönnum síðunnar sé óheimilt að nota nafn stöðvarinnar. Hópurinn heitir Hreyfill-Bæjarleiðir.Uppfært 13:30 Meðlimur í hópnum sem hafði samband við Vísi, sagði að búið væri að taka síðuna niður. Þar hefði upplýsingum og myndum úr öryggismyndavélum leigubíla af almennum farþegum ekki verið dreift. Þess í stað hefðu verið settar inn myndir af fólki sem ítrekað stingi leigubílstjóra af án þess að greiða eða jafnvel hóti þeim með sprautunálum. Hann sagði helsta markmið hópsins hafa verið að vara afleysingafólk við nokkrum slíkum einstaklingum. Þar að auki sagði hann að þær myndir sem hafi verið birtar hafi ekki komið úr öryggiskerfi bílanna heldur hafi þær verið teknar á síma.
Mest lesið Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Innlent Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Innlent Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Innlent Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Innlent Fleiri fréttir Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Neitaði að borga og sló vagnstjórann Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Huga þurfi líka að heimferðinni Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Þrír handteknir á Þingvöllum Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Manndráp í Kópavogi og styttist óðfluga í sólmyrkvann Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Sjá meira