Innlent

Fjarðalax hættir við uppsagnir á Patreksfirði

Atli Ísleifsson skrifar
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, fagnar samkomulaginu.
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, fagnar samkomulaginu.
Stjórnendur Fjarðalax og bæjaryfirvöld Vesturbyggðar komust í dag að samkomulagi sem felur í sér að uppsagnir fjórtán starfsmanna fyrirtækisins, sem starfa við vinnslu og pökkun á Patreksfirði, verða dregnar til baka.

„Að sögn Einars Arnar Ólafssonar, framkvæmdastjóra Fjarðalax, hyggst félagið með þessari ákvörðun leita leiða með Vesturbyggð og öðrum hagsmunaaðilum á svæðinu til þess að finna lausn sem tryggir varanlega vinnslu afurða félagsins á atvinnusvæðinu.

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, fagnar þessu samkomulagi enda hafi uppsagnirnar komið verulega á óvart og verið mikið reiðarslag fyrir bæjarfélagið og viðkomandi starfsfólk, hefðu þær komið til framkvæmda,“ segir í tilkynningu frá sveitarfélaginu.


Tengdar fréttir

Vinnsla fiskeldisins gæti horfið burt úr byggðinni

Uppsagnir fiskeldisfyrirtækisins Fjarðalax á fjórtán starfsmönnum á Patreksfirði og hugmyndir um að flytja vinnslu afurðanna burt af svæðinu eru mikið reiðarslag, að mati Verkalýðsfélags Vestfjarða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×