Innlent

Guðrún Ágústa nýr framkvæmdastjóri ASÍ

Atli Ísleifsson skrifar
Guðrún Ágústa varð bæjarstjóri Hafnarfjarðar í júní 2012 og gegndi því embætti til júní 2014.
Guðrún Ágústa varð bæjarstjóri Hafnarfjarðar í júní 2012 og gegndi því embætti til júní 2014.
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri ASÍ. Hún mun hefja störf þann 1. maí næstkomandi.

Guðrún Ágústa varð bæjarstjóri Hafnarfjarðar í júní 2012 og gegndi því embætti til júní 2014.

Í tilkynningu frá ASÍ segir að Guðrún Ágsústa hafi verið verkefnisstjóri stefnumótunar hjá Strætó bs. síðan í október 2014. „Guðrún Ágústa hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í stjórnum og ráðum á vegum Hafnarfjarðarbæjar. Hún lætur af öllum embættum á hinum pólitíska vettvangi áður en hún kemur til starfa hjá ASÍ.“

Guðrún Ágústa er með BA gráðu bókmennta- og fjölmiðlafræði og var kennari við Flensborgarskóla í fjölda ára auk þess að sitja í bæjarstjórn Hafnarfjarðar fyrir Vinstri græna frá 2006. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×