Svikahrappar herja á samskiptamiðla Höskuldur Kári Schram skrifar 7. febrúar 2015 20:35
Erlendir svikahrappar nýta sér í vaxandi mæli samfélagsmiðla á borð við Facebook og Tinder til að svíkja fé út úr grunlausum einstaklingum. Dæmi erum að íslensk fórnarlömb hafi tapað mörgum milljónum. Lögreglan sendi í vikunni út viðvörun vegna þessara svikahrappa en þeir nýta sér samfélags- og stefnumótamiðla til að komast í samband við væntanleg fórnarlömb. „Menn fá vinabeiðni og þar er ýmist huggulegur einhleypur, vel stæður karlmaður á fimmtugsaldri ef menn velja sér kvenfólk sem fórnarlömb. Sé markmiðið karlmaður er oft um unga stúlku að ræða,“ segir Hafliði Þórðarson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Svikahrapparnir taka sér langan tíma, oft marga mánuði, til að byggja upp traust áður en þeir byrja að svíkja út peninga. Oft segjast þeir hafa lent í tímabundnum fjárhagserfiðleikum eða þeir segja að þá vanti pening til að kaupa flugmiða til Íslands. Hafliði segir að það geti tekið langan, langan tíma að fletta ofan af slíkum málum. Fólk hljóti oft töluvert tjón af. Það hafi jafnvel sent út mörg hundruð þúsunda króna, ef ekki milljónir. Nánast útilokað sé að ná peningunum til baka en lögreglunni hafi nú þegar borist nokkrar tilkynningar út af svona svikum. „Ég held að við sjáum bara toppinn á ísjakanum í svona málum. Ég held að þegar fólk uppgötvar að það hafi verið haft að fíflum þá sé það feimið við að leita til lögreglu. Það er engin minnkun í því og við höfum áhuga á að vita af þessum málum þó við höfum takmarkaða getu til að fylgja þeim eftir. Við viljum vita hvað er í gangi þannig við getum allavega varað við þeim hlutum sem eru í gangi í fjársvikaheiminum,“ segir Hafliði.
Tengdar fréttir Facebook, Instagram og Tinder niðri í nótt Tölvuárás virðist hafa verið gerð á kerfi fyrirtækisins. 27. janúar 2015 07:10 Breytinga að vænta á Tinder Notendur stefnumótaforritsins Tinder munu á næstunni geta borgað fyrir uppfærða útgáfu af forritinu sem mun bjóða upp á ýmsa nýja möguleika. 3. febrúar 2015 14:15 Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Sjá meira
Facebook, Instagram og Tinder niðri í nótt Tölvuárás virðist hafa verið gerð á kerfi fyrirtækisins. 27. janúar 2015 07:10
Breytinga að vænta á Tinder Notendur stefnumótaforritsins Tinder munu á næstunni geta borgað fyrir uppfærða útgáfu af forritinu sem mun bjóða upp á ýmsa nýja möguleika. 3. febrúar 2015 14:15