Emil lagði upp enn eitt markið Anton Ingi Leifsson skrifar 15. mars 2015 19:05 Emil hefur verið að spila vel að undanförnu. vísir/getty
Emil Hallfreðsson var sem fyrr í byrjunarliði Hellas Verona sem vann frábæran sigur á Napoli í ítölsku knattspyrnunni í dag, 2-0. Emil spilaði allan leikinn fyrir Hellas. Markamaskínan Luca Toni kom Hellas yfir eftir sjö mínútna leik og þannig stóðu leikar í hálfleik. Þegar sex mínútur voru liðnar af síðari hálfleik skoraði Toni aftur, nú eftir undirbúning frá Hafnfirðingnum. Lokatölur urðu eins og fyrr segir 2-0, en Emil hefur verið að leika frábærlega með Hellas á undanförnum vikum. Hann hefur lagt upp fimm mörk á síðustu vikum og spilað stórt hlutverk hjá Hellas. Hellas er í fjórtánda sætinu með 32 stig, en Napoli er í fjórða sætinu í mikilli baráttu við Lazio um síðasta Meistaradeildarsætið. Tapið því súrt fyrir Napoli, en mikilvægt fyrir Emil og félaga. Þetta eru frábær tíðindi fyrir íslenska landsliðið að Emil sé að spila vel, en hann hefur spilað vel með landsliðinu það sem af er þessari undankeppni. Ísland mætir Kazakhstan í lok mánaðarins.
Ítalski boltinn Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Fótbolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Handbolti Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Fleiri fréttir Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Sjá meira