Ætla að koma upp vegriði við Miklubraut þar sem harður árekstur átti sér stað Birgir Olgeirsson skrifar 20. október 2015 15:14 Fyrir áramót verður komið upp vegrið í stað girðingar sem aðskilur akbrautir á þessum stað Miklubrautarinnar. Vísir/Kristinn
Vegagerðin ætlar að setja upp vegrið við þann kafla Miklubrautarinnar þar sem harður árekstur átti sér stað síðastliðinn sunnudag. Fólksbíll og jeppi skullu þar saman en talið er að bílstjóri annarrar bifreiðarinnar hafi misst stjórn á bíl sínum með þeim afleiðingum að bíllinn fór yfir á gagnstæða akbraut. Girðing aðskilur akbrautirnar á þessum kafla Miklubrautarinnar til að varna för gangandi vegfarenda yfir þær en einhverjir hafa sett spurningarmerki við það hvers vegna ekki hefur verið sett upp vegrið þar og reyna þannig að koma í veg fyrir að bílslys geti orðið með þeim hætti líkt og átti sér stað á sunnudag.Sjá einnig: Fimm fluttir á slysadeild eftir harðan áreksturTalið er að slysið á sunnudag hafi orðið með þeim hætti að bílstjóri annarrar bifreiðarinnar missti stjórn á bíl sínum með þeim afleiðingum að bíllinn fór yfir á gagnstæða akbraut.Vísir/KristinnG. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir í samtali við Vísi að Vegagerðin hafi undanfarin ár gert mikið átak í því að koma upp vegriðum á höfuðborgarsvæðinu. Hafa vegrið til að mynda verið látin upp þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund. Einnig eru dæmi um að vegrið hafi verið sett upp þar sem hámarkshraði er 60 kílómetrar á klukkustund, til að mynda á Reykjanesbrautinni, þar sem ökumenn aka mun hraðar en leyfilegur hámarkshraði segir til um.Sjá einnig: Útskrifuð af gjörgæsludeild eftir harðan árekstur á Miklubraut Pétur segir þennan kafla Miklubrautarinnar, það er að segja frá Grensásvegi og að mislægu gatnamótunum við Fenin og Skeifuna, hafa verið á dagskrá Vegagerðarinnar og stendur til að vegrið verði komið þar upp fyrir áramót.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fleiri fréttir ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Sjá meira