Fréttastofa 365 með fjórar tilnefningar til Blaðamannaverðlaunanna Bjarki Ármannsson skrifar 21. febrúar 2015 00:00 Tilnefningar til Blaðamannaverðlaunanna í ár voru kynntar fyrir stuttu. Vísir/Vilhelm
Fréttastofa 365 hlýtur fjórar tilnefningar til Blaðamannaverðlaunanna í ár, en tilkynnt var um tilnefningarnar nú fyrir stuttu. Ólöf Skaftadóttir er tilnefnd í flokknum Viðtal ársins fyrir viðtal sitt við tvíburabræðurna Kára og Halldór Auðar- og Svanssyni, sem birtist í Fréttablaðinu þann 14. júní í fyrra. Bræðurnir fjölluðu þar meðal annars um baráttu þeirra beggja við geðræna kvilla. Viktoría Hermannsdóttir hlýtur tilnefningu í flokknum Blaðamannaverðlaun ársins fyrir umfjöllun sína í Fréttablaðinu um innflytjendur á Íslandi og þær hindranir sem þeir verða fyrir þegar þeir vilja öðlast réttindi til að starfa samkvæmt menntun sinni og áhrifarík viðtöl á árinu. Þá eru þrír fréttamenn 365 tilnefndir í flokknum Rannsóknarblaðamennska ársins. Annars vegar hljóta þeir Garðar Örn Úlfarsson á Fréttablaðinu og Þorbjörn Þórðarson á Stöð 2 tilnefningu fyrir umfjöllun sína um flugslysið við Hlíðarfjallsveg í fyrra. Fréttastofan birti myndband af brotlendingu flugvélarinnar TF-MYX sem varpaði nýju ljósi á aðdraganda slyssins. Hins vegar er Hrund Þórsdóttir tilnefnd fyrir umfjöllun sína um lyfjamistök fyrir Stöð 2 en Hrund kafaði ofan í andlát Péturs Péturssonar, eldri manns sem lést rúmri viku eftir að honum var gefinn rangur lyfjaskammtur á hjúkrunarheimilinu Garðvangi. Tilnefningarnar til Blaðamannaverðlaunanna í ár eru birtar hér fyrir neðan í heild sinni.Viðtal ársinsIndíana Hreinsdóttir, DV. Viðtal við Stefán Hilmarsson. Viðtalið er gott dæmi um hvernig hægt er að skrifa áhugavert viðtal sem sýnir þekktan einstakling í nýju og persónulegu ljósi og segja frá ævi hans og erfiðleikum á áreynslulausan hátt.Júlía Margrét Alexandersdóttir, Morgunblaðinu. Viðtal við Þorstein J. Vilhjálmsson. Viðtalið er einlægt og afar persónulegt og nær Júlía að draga fram persónuna og sögu Þorsteins á afar næman hátt.Ólöf Skaftadóttir, Fréttablaðinu. Viðtal við tvíburabræðurna Kára og Halldór Auðar- og Svanssyni. Viðtalið er einstaklega hispurslaust um baráttu þeirra bræðra við geðræna sjúkdóma. Þrátt fyrir erfitt umfjöllunarefni nær Ólöf að viðhalda léttleika í gegnum viðtalið en gefur samt ekkert eftir í raunsönnum lýsingum.Umfjöllun ársinsIngibjörg Dögg Kjartansdóttir, DV. Umfjöllun um Alzheimer og heilabilun. Með hreinskilnum og áhrifaríkum frásögnum fengu lesendur skýra sýn á það hvernig erfiður og algengur sjúkdómur snertir sjúklingana og fjölskyldur þeirra.Ritstjórn mbl.is. Umfjöllun um stórbrunann í Skeifunni. Ritstjórn mbl.is nýtti sér alla helstu kosti netsins og færði lesendum skjótt, vel og með myndrænum hætti fréttir af bruna í Skeifunni frá ýmsum sjónarhornum og um leið og þær gerðust.Sigurður Mikael Jónsson. DV. Umfjöllun um neytendamál. Með frumlegri nálgun og myndrænni framsetningu tókst honum að varpa ljósi á ólíkar hliðar daglegrar neyslu sem hefur mikil áhrif á kjör fólks og heilsu.Blaðamannaverðlaun ársinsJóhann Páll Jóhannsson og Jón Bjarki Magnússon, DV. Umfjöllun um lekamálið. Jóhann Páll og Jón Bjarki sýndu einstakt þolgæði við að upplýsa allar hliðar lekamálsins svokallaða og fylgdu málinu vel eftir, þrátt fyrir mikið mótlæti og andstöðu ráðherra sem endaði með afsögn hans.Magnús Halldórsson, Ægir Þór Eysteinsson og Þórður Snær Júlíusson, Kjarnanum. Umfjöllun um sölu Landsbankans á Borgun. Kjarnamenn drógu fram mikilsverðar upplýsingar um kaupin og hvernig kaupendur voru valdir á bak við luktar dyr og settu það fram á auðskiljanlegan hátt fyrir lesendur.Viktoría Hermannsdóttir, Fréttablaðinu. Umfjöllun um innflytjendur og áhrifarík viðtöl. Fyrir að varpa ljósi á þær hindranir sem innflytjendur verða fyrir á Íslandi þegar þeir vilja öðlast réttindi til að starfa samkvæmt menntun sinni. Einnig birtust á árinu áhrifarík viðtöl Viktoríu við einstaklinga sem hafa þurft að takast á við erfiðleika.Rannsóknarblaðamennska ársinsGarðar Örn Úlfarsson Fréttablaðinu og Þorbjörn Þórðarson Stöð 2. Umfjöllun um flugslysið við Akureyri. Garðar Örn og Þorbjörn birtu myndband sem varpaði nýju ljósi á aðdraganda slyssins. Í kjölfarið fylgdu fréttir sem drógu fram í dagsljósið umgengni og viðhorf forsvarsmanna flugfélagsins til sjúkraflutninganna og hvernig yfirvöld hlupu undir bagga með flugfélaginu.Helgi Seljan, Kastljósi. Umfjöllun um MS og uppruna vöru. Í umfjöllun sinni uppljóstraði Helgi hvernig MS, sem og önnur fyrirtæki, leyna því fyrir almenningi þegar þau blanda erlendri vöru við íslenska. Einnig benti hann á að embættismaður í ráðuneyti landbúnaðar hefur setið beggja vegna borðsins í mörgum málum sem snerta samkeppni og landbúnað.Hrund Þórsdóttir, Stöð 2. Umfjöllun um lyfjamistök. Hrund kafaði ofan í andlát eldri manns sem lést rúmri viku eftir að honum var gefinn rangur lyfjaskammtur á heilbrigðisstofnun. Hrund leitaði víða fanga í eftirfylgni með málinu, m.a. með fordæmalitlu viðtali við lækni mannsins sem undraðist afstöðu landlæknis en einnig með mjög skýrri almennri umfjöllun um lyfjamistök, viðbrögð við þeim og hvernig hægt er að takmarka slík mistök.
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Sjá meira