Innlent

Tveir menn handteknir: Stálu reiðhjólum að verðmæti fleiri milljóna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mennirnir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu.
Mennirnir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu. visir/vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst innbrot í reiðhjólaverslun í Kópavogi um páskana. Þá var lítilli sendibifreið, á annan tug reiðhjóla, hjálmum og verkfærum stolið.

Ökutækið og hluti reiðhjólanna eru komin í leitirnar, auk reiðhjóla úr öðrum þjófnaðarmálum, og því ljóst að þjófarnir hafa verið stórtækir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Tveir karlar, annar á fertugsaldri en hinn á fimmtugsaldri, voru handteknir vegna málsins, en þeir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu.

Í þágu rannsóknarinnar voru framkvæmdar allmargar húsleitir á höfuðborgarsvæðinu, en í þeim var m.a. lagt hald á á þriðja tug reiðhjóla, sem flest eru ný, en verðmæti þess sem stolið var skiptir milljónum.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×