Innlent

Sex staðir í Hafnarfirði seldu unglingum neftóbak

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ekki var farið inn á staði með vínveitingaleyfi þar sem tóbak er selt.
Ekki var farið inn á staði með vínveitingaleyfi þar sem tóbak er selt. vísir/daníel
Tveir sölustaðir af fimmtán seldu unglingunum sígarettur en sex staðir seldu þeim neftóbak. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ. Í mars- og apríl stóð forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar fyrir könnun á því hvort unglingar gætu keypt sígarettur eða neftóbak á sölustöðum tóbaks í Hafnarfirði.

Tveir unglingar úr 10. bekk fóru á sölustaði undir eftirliti starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar og reyndu að kaupa neftóbak og svo nokkru seinna var reynt að kaupa sígarettur.

Ekki var farið inn á staði með vínveitingaleyfi þar sem tóbak er selt. Frekari upplýsingar úr könnuninni verða sendar Heilbrigðiseftirliti Kópavogs- og Hafnarfjarðarsvæðisins þar sem unnið verður úr þeim eins og lög gera ráð fyrir. Sölustöðunum er seldu börnunum tóbak verður einnig send ábending frá forvarnarfulltrúa.

Einn sölustaður seldi unglingunum bæði sígarettur og neftóbak. Í tilkynningunni frá Hafnarfjarðarbæ segir að búast megi við að þeir staðir sem seldu börnum tóbak fái áminningu frá heilbrigðiseftirliti eins og kveður á um í lögum um tóbaksvarnir. Meirihluti sölustaða í Hafnarfirði hefur gert sérstakt samkomulag við forvarnafulltrúann sem miðar að því að leita allra leiða til að koma í veg fyrir sölu tóbaks til barna.

Í síðustu könnununum komu fram svipaðar niðurstöður og nú en þó er aukning í neftóbakssölu og minnkun í sígarettusölu. Markmiðið er að engin sölustaður selji börnum tóbak og því mun forvarnafulltrúi í umboði Fjölskylduráðs Hafnarfjarðar halda áfram með þessar kannanir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×