Pólska verður kennd í fyrsta sinn í Háskóla Íslands í haust Gunnhildur Jónsdóttir skrifar 26. ágúst 2015 16:15 Eyjólfur hefur unnið lengi að því að fá pólskukennslu í Háskóla Íslands en verkefnið er unnið í samstarfi við háskólann í Varsjá. Vísir/Vilhelm
Tungumálastöð HÍ heldur í haust sex vikna námskeið í samstarfi við háskólann í Varsjá. Þaðan mun koma kennari til þess að kenna á námskeiðinu. Ef áhugi er fyrir hendi væri í framhaldinu hægt að kenna pólsku í fullu námi. Það þykir undarlegt að Íslendingum hafi ekki áður staðið til boða að læra pólsku þar sem um 10.000 Pólverjar búa hér á landi. Fyrir hafði pólska aðeins verið kennd í Mími og í Pólskuskólanum sem sérhæfir sig í pólskukennslu fyrir pólsk börn. Eyjólfur Már Sigurðsson hjá Tungumálastöð HÍ vonast eftir góðri þátttöku á námskeiðinu því þá yrði möguleiki til að kenna pólsku sem fullt nám. „Þetta hefur aldrei verið kennt hjá okkur áður sem er svolítið skrítið því þetta er svo útbreitt tungumál. Við fórum að þreifa okkur áfram í styrkjum og samstarfi. Ég heimsótti háskólann í Varsjá til þess að kynna mér pólskunámið hjá þeim sem er alveg frábært. Við sóttum um styrk frá EFTA til þess að fjármagna ferðir kennarans til og frá Íslandi sem við fengum,“ segir Eyjólfur. Hver sem er getur skráð sig í gegnum Endurmenntun Háskóla Íslands og tekið námskeiðið. „Þetta er hugsað fyrir nemendur sem vilja taka eitthvað meira en þetta er hentugt þar sem þetta er kennt á skömmum tíma. Þetta er líka upplagt fyrir alla þá sem hafa áhuga á að læra pólsku sem annað tungumál. Námskeiðið er metið til fimm eininga. Við erum ekki enn þá komin með tölu yfir hversu margir mæta á námskeiðið en skráning fyrir nemendur háskólans verður til 10. september. Skráning í gegnum Endurmenntun verður eitthvað lengur en það.“
Mest lesið Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Fleiri fréttir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Sjá meira