Razzies verðlaunin verða veitt í þrítugasta og fimmta sinn í febrúar en listi yfir tilnefningar kom út í gær. Razzies-verðlaunahátíðin, eða The Golden Raspberry Awards, snýst um að vekja athygli á verstu myndum síðustu tólf mánaða.
Fjórða kvikmyndin í Transformers-seríunni er hlutskörpust að þessu sinni þegar það kemur að tilnefningum. Myndin fær alls sjö tilnefningar, meðal annars sem versta myndin og versta handritið.
Gamanmyndin um stökkbreyttu skjaldbökurnar, Teenage Mutant Ninja Turtles, fær fimm tilnefningar, en illa hefur gengið að láta skjaldbökurnar taka á flug síðan þær voru sem vinsælastar um miðjan tíunda áratug síðustu aldar.
Nokkrir þekktir leikarar eru tilnefndir. Nicolas Cage, Adam Sandler, Drew Barrymore, Charlize Theron, Mel Gibson, Kelsey Grammer og körfuboltahetjan Shaquille O'Neal.
Þekktasti leikstjórinn sem er tilnefndur er Michael Bay fyrir að leikstýra Transformers: Age of Extinction.
En Razzies-verðlaunin eru ekki bara á neikvæðu nótunum. Einnig eru verðlaun veitt fyrir þá sem hafa náð að snúa við blaðinu; voru eitt sinn slakir en gerðu góða hluti á liðnu ári. Þeir sem eru tilnefndir þar eru meðal annars Jennifer Aniston og Ben Affleck.
Hér má sjá lista yfir þá sem eru tilnefndir:
Versta myndin
Kirk Cameron's Saving Christmas
Left Behind
The Legend of Hercules
Teenage Mutant Ninja Turtles
Transformers: Age of Extinction
Versti leikari í aðalhlutverki
Kirk Cameron - Kirk Cameron's Saving Christmas
Nicolas Cage - Left Behind
Kellan Lutz - The Legend of Hercules
Seth MacFarlane - A Million Ways to Die in the West
Adam Sandler - Blended
Versti leikari í aukahlutverki
Mel Gibson - The Expendables 3
Kelsey Grammer - The Expendables 3, Legends of Oz, Think Like a Man Too, Transformers: Age of Extinction
Shaquille O'Neal - Blended
Arnold Schwarzenegger - The Expendables 3
Kiefer Sutherland - Pompeii
Versta leikkona í aðalhlutverki
Drew Barrymore - Blended
Cameron Diaz - The Other Woman and Sex Tape
Melissa McCarthy - Tammy
Charlize Theron - A Million Ways to Die in the West
Gaia Weiss - The Legend of Hercules
Versta leikkona í aukahlutverki
Cameron Diaz - Annie
Megan Fox - Teenage Mutant Ninja Turtles
Nicola Peltz - Transformers: Age of Extinction
Susan Sarandon - Tammy
Brigitte Ridenour (nee Cameron) - Kirk Cameron's Saving Christmas
Versti leikstjóri
Michael Bay - Transformers: Age of Extinction
Darren Doane - Kirk Cameron's Saving Christmas
Renny Harlin - The Legend of Hercules
Jonathan Liebesman - Teenage Mutant Ninja Turtles
Seth MacFarlane - A Million Ways to Die in the West
Versta endurgerð, stuldur eða framhaldsmynd
Annie
Atlas Shrugged: Who Is John Galt?
The Legend of Hercules
Teenage Mutant Ninja Turtles
Transformers: Age of Extinction
Versta blandan á skjánum
Einhver tvö vélmenni í myndinni Transformers: Age of Extinction
Kirk Cameron og egóið hans í myndinni Kirk Cameron's Saving Christmas
Cameron Diaz og Jason Segel í myndinni Sex Tape
Kellan Lutz og vöðvarnir hans í myndinni The Legend of Hercules
Charlize Theron og Seth MacFarlane í myndinni A Million Ways to Die in the West
Versta handrit
Kirk Cameron's Saving Christmas
Left Behind
Sex Tape
Teenage Mutant Ninja Turtles
Transformers: Age of Extinction
Besti viðsnúningur - Þeir sem voru lélegir en urðu góðir
Ben Affleck - frá Gigli í myndirnar Argo og Gone Girl
Jennifer Aniston sem hefur fjórum sinnum verið tilnefnd til Razzie verðlauna en lék í Cake
Mike Myers - frá The Love Guru í að leikstýra Supermensch
Keanu Reeves - sem hefur sex sinnum verið tilnefndur en lék í John Wick á árinu.
Kristen Stewart - sem hefur sex sinnum verið tilnefnd en lék í Camp X-Ray á árinu.
Verstu kvikmyndir ársins tilnefndar
Kjartan Atli Kjartansson skrifar

Mest lesið








Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorleifur er kominn í úrslit
Lífið samstarf


Iðnaðarmaður ársins 2025 - Eyjólfur er kominn í úrslit
Lífið samstarf