Tilnefnd til fjölmiðlaverðlauna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins Tinni Sveinsson skrifar 10. september 2014 21:00 Gunnþóra skrifaði um náttúruperlur á Íslandi í Fréttablaðið í sumar.
Dómnefnd hefur tilnefnt þrjá til fjölmiðlaverðlauna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins sem veitt verða á Degi íslenskrar náttúru, þriðjudaginn 16. september næstkomandi. Meðal tilnefndra er Gunnþóra Gunnarsdóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu og fréttastofu 365, fyrir hnitmiðaða, einfalda og fallega umfjöllun um náttúru Íslands. Gunnþóra skrifaði í sumar greinaflokk undir heitinu Útivist og afþreying. Þar var sjónum beint að áhugaverðum náttúruperlum í öllum landshlutum. Dómnefnd segir framsetningu efnisins hafa verið aðlaðandi og til þess fallin að kveikja löngun hjá lesandanum til að ferðast um landið og sjá það með eigin augum. Hægt er að skoða umfjöllunina í myndasafninu hér fyrir neðan.Just.In.Iceland var einnig tilnefnt fyrir að nýta sér Netið og gagnvirkni þess með frábærum árangri. Just.In.Iceland er framtak áhugamanna í því augnamiði að kynna sérstöðu Íslands fyrir umheiminum með því að skapa stafrænan vettvang til að birta og deila fagmannlega teknum ljósmyndum af íslenskri náttúru og lífríki. Einnig var fjölmiðillinn RÚV tilnefndur í einu lagi fyrir umfjöllun um almannarétt og gjaldtöku fyrir aðgang að náttúruperlum. Allt frá stuttum fréttaskotum til ítarlegra og vandaðra skýringa eða umræðu. Í dómnefnd sitja Þór Jónsson formaður, Árni Gunnarsson og Snæfríður Ingadóttir.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglinn í Þýskalandi Erlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira