„Þurfum vonandi aldrei á þessu tæki að halda“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. september 2014 10:07 Félagar í Lionsklúbbnum Frey afhentu SHS hjartahnoðtæki að gjöf til afnota í sjúkrabílum. Á myndinni eru þeir Guðmundur Jón Helgason, formaður Freys, Þórður Guðmundsson, ritari, Magnús Tryggvason, gjaldkeri, Sigurður Tómasson, Sverrir Helgason, Jón K. Guðbergsson, Bernhard Petersen, Sverrir Sigfússon, Gunnar Bjarnason og Jón R. Sigurjónsson. Einnig Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri, Brynjar Friðriksson deildarstjóri og sjúkraflutningamenn á vakt. „
Við erum mjög meðvitaðir um starf SHS og þó að við félagarnir vonum að við þurfum aldrei á þessu tæki að halda óskum við þess einlæglega að það komi að góðum notum,“ segir Guðmundur Jón Helgason, formaður Lionsklúbbsins Freys. Guðmundur afhenti Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins nýtt Lucas hjartahnoðtæki til afnota í sjúkrabílum. Tækið spennist utan um sjúklinginn og hnoðar hann með tjakki sem gengur niður á brjóstið. Þannig veitir það jafnt og stöðugt hjartahnoð sem getur aukið lífslíkur sjúklings sem þarf að flytja milli staða, oft á tíðum við erfiðar aðstæður. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri tók við tækinu fyrir hönd SHS og sagði það sannarlega koma að góðum notum. Sambærilegt tæki hjá SHS hefur létt mönnum verulega starfið og tilkoma þess líklega haft hvað mestu breytinguna í för með sér fyrir sjúkraflutningamenn síðustu árin að því er segir í tilkynningu frá slökkviliðinu. Lionsfélagar hafa það markmið að láta gott af sér leiða á sviði mannúðar- og menningarmála og leggja þeim lið sem minna meiga sín. Þegar þeir heyrðu að SHS vantaði hjartahnoðtæki hófu þeir söfnun fyrir einu sliku. Þar með er búið að tækjavæða tvær af þremur stöðvum SHS en sú fjórða er væntanleg í Mosfellsbæ fljótlega.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira