Segir vafa leika á um hvort rassskelling hafi sést á myndbandinu Aðalsteinn Kjartansson skrifar 26. september 2014 12:26 Sigríður Friðjónsdóttir er ríkissaksóknari. Hún sendi frá sér tilkynningu í dag vegna álits umboðsmanns barna. Vísir / Samsett mynd
Ríkissaksóknari segir að vafi hafi leikið á því hvort að sú snerting sem sést á myndbandinu sem lagt var fram vegna rannsóknar á harðræði í 101 leikskóla hafi verið rassskelling. Saksóknari hafnar þeirra túlkun umboðsmanns barna að hann telji rassskellingu ekki vera ofbeldi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem ríkissaksóknari hefur sent frá sér vegna álits sem umboðsmaður barna sendi frá sér. Í yfirlýsingunni segist ríkissaksóknari líta það alvarlegum augum að umboðsmaður skuli draga þær ályktanir af afgreiðslu málsins að börnum sé ekki veitt refsivernd gegn líkamlegri valdbeitingu starfsfólks leikskóla. Saksóknari gerir einnig athugasemd við fullyrðingu umboðsmanns að það virðist hafið yfir skynsamlegan vafa að umræddur starfsmaður notaði ítrekað þá aðferð að slá á rass barna í þeim tilgangi að halda uppi aga. „Í afstöðu ríkissaksóknara, þar sem niðurstaða lögreglustjóra um að fella málið niður var staðfest, var gerð grein fyrir því að atvik væru mjög óljós hvað þetta varðar,“ segir ríkissaksóknari. Í yfirlýsingunni kemur fram að þrjú vitni hafi ekki sagst hafa séð umræddan starfsmann flengja börn, aðrir þrír hafi séð hana en gátu ekki lýst því hve oft, hvaða börn né með hvaða hætti rassskellingarnar áttu sér stað. „Ekki var því unnt að komast að niðurstöðu um það hvort vitnin voru að lýsa sömu atvikum eða hvort sú háttsemi sem vitnin lýstu væri refsiverð, en kærða neitaði sök hvað þetta varðaði,“ segir saksóknari.
Tengdar fréttir Sérstaklega talað um rassskellingar þegar barnalögum var breytt Umboðsmaður barna telur að lögreglan hafi vísað til orðalags eldra ákvæðis laganna 19. september 2014 16:38 Velferðarnefnd skoðar mál 101 leikskóla Sigríður Ingibjörg Ingadóttir segir vilja löggjafans vera að banna rassskellingar 22. september 2014 13:30 Umboðsmaður barna: Hafið yfir skynsamlegan vafa að ómálga barn var beitt ofbeldi Gagnrýnir harðlega ákvörðun lögreglu og ríkissaksóknara að láta kæru foreldra barns á 101 leikskóla falla niður 19. september 2014 13:33 „Ég hef enga vitneskju um hvað kom fyrir barnið mitt“ Foreldri barns sem var á 101 leikskóla segist reikna með því að fá aldrei svör við því hvort eitthvað hafi komið fyrir dóttur sína á leikskólanum. 26. september 2014 09:00 Fordæma niðurfellingu máls gegn starfsmanni 101 leikskóla Félag foreldra leikskólabarna í Reykjavík segir í yfirlýsingu að niðurfelling málsins sé aðför að öryggi barna í leikskólum. 22. september 2014 15:44 Mest lesið SAS fellir niður allt flug til Grænlands Erlent Andlát í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt Innlent Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Ætli sér ekki að banna hinsegin fánann Innlent Dúx í MH og talar fjögur tungumál Innlent „Við þurfum að bregðast við því ákalli, það er augljóst“ Innlent Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Innlent Skjálftahrina á Hellisheiði hófst í morgun Innlent Er tilbúin að blása í herlúðra í haust Innlent Fleiri fréttir Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni „Það er enginn réttindagæslumaður starfandi á landsbyggðinni“ Senda loftbelgi á loft á hálftíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir Undirbúa íbúafund þar sem farið verði yfir stöðu mála Líkamsárás á veitingastað í miðborginni og umfangsmikill þjófnaður Skjálftahrina á Hellisheiði hófst í morgun Fengu innblástur úr Vesturbænum þar sem börn mótmæltu Sjálfsvíg í fangelsum of algeng Afsögn enn ódagsett Er tilbúin að blása í herlúðra í haust Dúx í MH og talar fjögur tungumál Loka skrifstofum vegna óvissu um framtíð heilbrigðiseftirlits Ætli sér ekki að banna hinsegin fánann „Við þurfum að bregðast við því ákalli, það er augljóst“ Leigufélög gætu gleypt húsnæðismarkaðinn Andlát í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt Vinnumarkaður, verðbólga og ESB í Sprengisandi í dag Skjálfti upp á 2,8 við Hellisheiði Fræsa og malbika Vesturlandsveg í kvöld Ók rafmagnshjólinu á bíl í 101 Áverkar geti sagt til um kraft sem er beitt í kyrkingu Menntaskólanum í Reykjavík slitið í 180. sinn Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Fimm handteknir og um mikið magn sterkra fíkniefna að ræða „Okkur þykir vænt um svæðið og við höfum áhyggjur af því“ Engir Framsóknarfingur í kökukrúsinni í Kópavogi Nágranni fluttur á HSS eftir bruna í Vogum Sjá meira
Sérstaklega talað um rassskellingar þegar barnalögum var breytt Umboðsmaður barna telur að lögreglan hafi vísað til orðalags eldra ákvæðis laganna 19. september 2014 16:38
Velferðarnefnd skoðar mál 101 leikskóla Sigríður Ingibjörg Ingadóttir segir vilja löggjafans vera að banna rassskellingar 22. september 2014 13:30
Umboðsmaður barna: Hafið yfir skynsamlegan vafa að ómálga barn var beitt ofbeldi Gagnrýnir harðlega ákvörðun lögreglu og ríkissaksóknara að láta kæru foreldra barns á 101 leikskóla falla niður 19. september 2014 13:33
„Ég hef enga vitneskju um hvað kom fyrir barnið mitt“ Foreldri barns sem var á 101 leikskóla segist reikna með því að fá aldrei svör við því hvort eitthvað hafi komið fyrir dóttur sína á leikskólanum. 26. september 2014 09:00
Fordæma niðurfellingu máls gegn starfsmanni 101 leikskóla Félag foreldra leikskólabarna í Reykjavík segir í yfirlýsingu að niðurfelling málsins sé aðför að öryggi barna í leikskólum. 22. september 2014 15:44