Hugmyndir Illuga þykja stórfurðulegar Jakob Bjarnar skrifar 26. september 2014 14:07 Kristján B. segir það hvergi þekkjast á byggðu bóli að komið sé upp flokkunarnefnd ríkisins á mikilvægi bóka, eins og Illugi Gunnarsson leggur til.
Útgefendur og rithöfundar eru æfir vegna fyrirhugaðrar hækkunar virðisaukaskatts á bækur og hafa að undanförnu birst þungorðar greinar bókafólks sem beinast að stjórnvöldum. Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra hefur hunsað útgefendur sem ítrekað hafa kallað eftir fundi með honum en nýverið kom þó útspil frá Illuga þar sem hann kynnir hugmyndir um mótvægisaðgerðir; þá að undanskilja ákveðnar tegundir bóka virðisaukaskatti. Útgefendur reka upp stór augu, þeirra á meðal fræðibókaútgefandinn Kristján B. Jónasson: „Að hafa lágan virðisaukaskatt á bækur er langeinfaldasta og öflugasta aðgerð sem stjórnvöld geta beitt ef þau vilja styðja við bókaútgáfu á íslensku, yfirleitt. Kosturinn við lágan virðisaukaskatt á bækur er að þá er aldrei verið að hygla einni bókmenntategund umfram aðra. Það er ekki stjórnvalda að taka ákvörðun um það hvort barnabók, sem er kannski afþreyingarbók, eða bók sem er kennslubók, eða matreiðslubók eða einhver slík... sé betri eða verri eða mikilvægari en aðrar bækur. Allir sem eru að gefa út bækur á Íslandi, það er fjöldi aðila, yfir hundrað lögaðilar sem gefa út bækur á hverju ári og þeir eru að gefa út ýmiskonar bækur og það sem tryggir fjölbreytni á markaði er að menn vita að það allir sitja nokkurn veginn við sama borð. Það að skipuð sé einhver flokkunarnefnd ríkisins á bækur er stórfurðuleg hugmynd og þekkist hvergi á byggðu bóli. Eða, ekki svo ég viti til.“Má þá jafnvel ganga svo langt að segja að hugmynd Illuga sé beinlínis galin? „Jahh, sko. Fyrst og fremst, útspilið snýst um það að ákveðnar tegundir bókmennta verði settar í lægra þrep, eða ekki þrep og aðrar í hærra þrep. Og allir vita að þar með er verið að flækja kerfið en ekki einfalda það,“ segir Kristján B. Jónasson útgefandi, og er fremur þungt í honum hljóðið. Kristján nefnir aðrar stuðningsaðgerðir, sem hann talar um sem ákjósanlegar, ekki að þær snúist um að „ákveða fyrirfram hvaða bækur eru merkilegri en aðrar. Markaðurinn; útgefendur, höfundar og lesendur eru fullfærir um að meta það.“
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Erlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira