Dagur upplýsir hverjir aðstoða hann í árlegu vöffluboði Aðalsteinn Kjartansson skrifar 26. september 2014 16:51 Dagur hefur boðið heim í vöfflur síðustu ár á Menningarnótt. Vísir/Stefán
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri furðar sig á umræðu um árlegt vöffluboð hans og eiginkonu sinnar á Menningarnótt. Framsóknarmenn hafa fjallað um málið á samfélagsmiðlum í dag en meðal annars spurði Karl Garðarsson, þingmaður flokksins, hvort rétt væri að borgin hafi borgað fyrir vöfflurnar. „Er það rétt skilið að borgin hafi borgað brúsann?“ spurði hann. Þetta staðfestir Dagur sem segir að fyrirkomulagið hafi verið óbreytt í tíu ár. „Höfuðborgarstofa auglýsir eftir íbúum sem vilja taka þátt og leggur þeim til hráefni. Þetta hefur alltaf verið opinbert og aldrei farið leynt,“ segir hann á Facebook-síðu sinni. „Við höfum einfaldlega tekið þátt á sömu forsendum og aðrar fjölskyldur í hverfinu.“Karl Garðarsson velti upp spurningum um vöffluboðið á Facebook í dag.Dagur vill einnig spara Framsóknarmönnum tíma og upplýsir í stöðuuppfærslunni hverjir aðrir hafa lagt sér lið við vöfflugerðina. „Fólk bætir auðvitað ýmsu við, og til að spara Framsóknarflokknum sporin þá vil ég upplýsa að við höfum þegið miklu meiri hjálp en þetta,“ segir hann og hefur upptalinguna. „Siggi bakari i Bernhöfts hrærir alltaf út fyrir okkur deigið, mamma og pabbi, móðursystur mínar, fjölskylda og vinir leggja iðulega fram hjálparhönd við að taka á móti gestum. Við fáum á hverju ári lánuð 10 vöfflujárn frá vinum og samstarfsfólki. Og þegar vöfflubakstri lýkur þá hjálpumst við að við að þrífa og við Arna eldum ofan í sjálfboðaliðana,“ upplýsir hann. „Ég veit ekki hvað Framsókn finnst en mér hefði satt best að segja fundist hálf-skrýtið ef við hefðum hætt þessu þegar ég varð borgarstjóri,“ segir Dagur. Post by Dagur B. Eggertsson.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira