Líkamsárás á Ólafsfirði: Einn kinnbeinsbrotinn og annar tannbrotinn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. september 2014 11:37 Frá Ólafsfirði.
Fimm karlmenn hafa verið ákærðir fyrir tvær alvarlegar líkamsárásir aðfaranótt 17. júní 2012 á Ólafsfirði. Annar þeirra sem fyrir árásinni varð kinnbeinsbrotnaði meðal annars en í hinum brotnaði tönn. Árásin átti sér stað við Aðalgötu þar sem mennirnir fimm eru sakaðir um að hafa veist að tveimur mönnum, ítrekað slegið og sparkað í líkama þeirra. Einn ákærða sló annan mannanna þannig að hann féll á bekk. Tönn brotnaði í munni hans auk þess sem hann bólgnaði yfir kinnbeini. Einn árásarmannanna fimm, sem allir eru skráðir til heimilis á Ólafsfirði, er ákærður fyrir sérstaklega alvarlega líkamsárás. Sá er sakaður um að hafa í kjölfar fyrri árásar veist að öðrum mannanna tveggja með því að sparka og slá ítrekað í líkama og höfuð hans. Sú árás átti sér stað við gatnamót Hornbrekkuvegar og Brekkugötu. Maðurinn kinnbeinsbrotnaði, fékk glóðarauga á báðum augum, bólgur og mar í andlit, verki og eymsli í hálshrygg og kjálkum. Málið var þingfest í Héraðsdómi Norðurlands Eystra á fimmtudag. Mennirnir fengu frest til að taka afstöðu til ákærunnar. Einn þeirra var ekki viðstaddur þar sem hann var ekki á landinu. Sá ku hins vegar vera væntanlegur til landsins. Maðurinn sem kinnbeinsbrotnaði fer fram á rúma milljón í skaða- og miskabætur. Sá sem tannbrotnaði krefst rúmlega 700 þúsund króna í bætur. Báðir krefjast þess að ákærðu greiði málskostnað.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira