Gaf af sér rangar upplýsingar Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 29. september 2014 17:39 vísir/gva
Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhald yfir karlmanni sem fluttur var til landsins í því skyni að afhenda hann íslenskum yfirvöldum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Honum er gert að sæta gæsluvarðhaldi í fjórar vikur eða þar til honum verður vísað brott af landi. Lögregla telur rökstuddan grun til að ætla að maðurinn hafi gefið rangar upplýsingar um hver hann er og hafi sýnt af sér hegðun sem gefi til kynna að af honum stafi hætta og kunni að grípa til frekari ofbeldis eða hótana um ofbeldi, gangi hann laus. Upplýsingarnar bárust frá Interpol þessa efnis að hann væri þekktur vegna ofbeldismála ásamt því að hafa áður gengið undir öðru nafni og fæðingardegi. Upphaf málsins má rekja til ársins 2011 þegar Fjölskyldu- og félagsþjónustan tók á móti honum og fjölskyldu hans sem óskuðu hælis. Grunur lék á að maðurinn væri haldinn alvarlegum geðsjúkdómi vegna ýmissa erfiðleika sem höfðu stigmagnast jafnt og þétt sem leiddu til þess að hann var lagður inn á geðdeild Landspítalans 29.apríl síðastliðinn. Hann var þó útskrifaður af geðdeild skömmu síðar, eða 9 maí, þar sem starfsmenn Landspítalans töldu öryggi starfsmanna og sjúklinga deildarinnar í hættu vegna veru hans á deildinni. Héraðsdómur og hæstiréttur féllust því á að rökstuddur grunur væri um að maðurinn hafi gefið rangar upplýsingar um hver hann er og að hætta stafi af honum. Honum er því gert að sæta gæsluvarðhaldi til 24. október næstkomandi eða uns dómur verður kveðinn upp og honum vísað úr landi.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira