„Líklegt að unglingar eða fullorðnir hafi verið þarna að verki“ Hjörtur Hjartarson skrifar 29. september 2014 19:45 „
Ég tel mig hafa sloppið vel," segir hjólreiðamaður sem er illa lemstraður eftir að hafa hjólað á vír sem strengdur var þvert yfir brú við Elliðaá. Lögreglan segir engar vísbendingar hafa borist um hver var að verki en ljóst sé að hinn seki hafi stofnað lífi samborgara sinna í hættu með verknaðinum. Atvikið átti sér stað, síðdegis á sunnudaginn. Þriggja millimetra vír úr brúnni hafði verið strengdur þvert yfir hana sem aftur skapaði mikla hættu fyrir þá sem þar áttu eftir að fara um. Jón Arnar Baldurs átti sér einskis ills von þegar hann var að hjóla um Elliðarárdalinn, Hann hjólaði á vírinn, steyptist því næst fram fyrir sig og skall á andlitið. Hann segir að ekki sé hægt að segja að honum hafi brugðið. „Maður í sjálfu sér áttaði sig ekki á því hvað var að gerast. Allt í einu var maður bara á flugi í loftinu. Þetta var bara ótrúlegt. Ég botnaði ekkert í þessu,“ segir Jón Arnar. Jón var saumaður 11 spor í ennið, hann tognaði illa á öxlinni, vinstri höndin á honum er blá og marin sem og hægra hnéið á honum. Hjálmur, hjól og gleraugu bera greinilega ummerki líka. „Einhvernveginn finnst manni þetta þannig framkvæmt að þetta séu nú meira en einhverjir krakkar sem eru að gera þetta. Mér finnst svona líklegra að unglingar eða fullorðnir sem hafi gert þetta. Maður áttar sig bara ekki á því hvað fólki gengur til.“ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskaði í dag eftir vísbendingum frá almenningi sem hjálpað gætu til við að leysa málið sem hún lítur mjög alvarlegum augum. Einar Ásbjörnsson, lögreglufulltrúi segir engan grunaðan á þessu stigi málsins. Hann segir að þó Jón Arnar hafi slasast mikið má ljóst vera að enn verr hefði getað farið. „Ef þetta hefði verið barn á hjóli þá hefði þetta getað lent á brjósti eða hálsi. Þetta er þriggja millimetra vír sem hefði getað valdið verulegum skaða,“ segir Einar. Jón Arnar hefur verið sárþjáður undanfarna sólarhringa og með öllu óvinnufær. Hann vonar að sá seki gefi sig fram. „Ég ætla að kæra þetta. Það liggur alveg ljóst fyrir,“ segir Jón Arnar.
Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Innlent D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða Innlent Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Innlent Fleiri fréttir Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða „Þá er bara búið að skemma MR“ Fyrsti framboðslisti Viðreisnar í Ísafjarðarbæ samþykktur Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Björgunarsveitir ferja heilbrigðisstarfsfólk í og úr vinnu Tók rúma þrjá tíma að slökkva eldinn Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Átökin breiðast út: Brá illilega þegar nærliggjandi hótel var sprengt í loft upp Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað Hringveginum lokað vegna veðurs Davíðs minnst á Alþingi Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Nýtt framboð í Bolungarvík Kristrún minnist Davíðs og víða flaggað í hálfa stöng Tók sambýliskonu sína hálstaki en var sýknaður Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Hringvegurinn líklega lokaður til morguns Íslenskir strandaglópar í Dúbaí Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Vélarvana bátur dreginn til hafnar í Sandgerði Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Davíð Oddsson er látinn Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Íslendingar óska eftir aðstoð Sjá meira