Nýi ósinn orðinn um 200 metrar að breidd Svavar Hávarðsson skrifar 26. júní 2014 09:19 Greinilega sést á myndinni að Lagarfljót fer allt um nýja ósinn og syðstu kvíslar Jöklu. Mynd/Stefán Scheving Einarsson
Nýr ós Lagarfljóts og Jökulsár á Dal í botni Héraðsflóa er orðinn 200 metra breiður hið minnsta, og allt rennsli Lagarfljóts og hluti af rennsli Jöklu fer um hann. Hjá Landsvirkjun standa vonir til að brim loki gamla ósnum í haust og að ekki þurfi að koma til frekari framkvæmda. Forsaga málsins er sú að í vetur fékk Landsvirkjun ábendingu frá landeigendum um að hætta væri á að Lagarfljót bryti sér leið yfir í Fögruhlíðará þar sem ósinn hafði færst nokkra kílómetra í norður. Var ákveðið að grafa nýjan ós þar sem hann hafði löngum verið á síðustu áratugum, eða 3,2 kílómetrum sunnar. Grafinn var um 200 metra langur og um tíu metra breiður skurður í gegnum fjörukambinn, og gert var ráð fyrir að árvatnið myndi síðan grafa út nýjan ós samhliða því að brimið lokaði núverandi ósi. Þetta gekk ekki eftir og var ljóst fljótlega í vetur að brimið hafði lokað ósnum aftur og í vor var ljóst að vatnið frá stóru ánum var tekið að flæða inn í ós Fögruhlíðarár, með tilheyrandi áhyggjum manna af veiði á svæðinu. Leikurinn var því endurtekinn 8. júní síðastliðinn, þó upphaflega hafi menn horft til frekari framkvæmda utan göngutíma laxfiska. Landeigendur, Veiðifélag Jökulsár á Dal og aðrir vildu hins vegar reyna aftur strax. Var orðið við því eftir samráð við Veiðimálastofnun og fleiri. Helgi Jóhannesson, verkefnisstjóri á þróunarsviði Landsvirkjunar, segir að ósinn líti mjög vel út. Þegar hafi hann náð að minnsta kosti 200 metra breidd og Lagarfljót allt renni um hann til sjávar og hluti Jöklu, sem heldur ennþá í gamla ósinn að hluta. „Í vetur var miklu meira brim og árnar vatnsminni svo þær náðu ekki að rífa sig út. Við vitum ekki hvort gamli ósinn lokast sjálfkrafa en við vonumst til að þurfa ekki að skipta okkur frekar af þessu því nýi ósinn er orðinn jafn stór eða stærri en sá gamli,“ segir Helgi og bætir við að orsökin fyrir færslu óssins sé ekki þekkt. Horft sé til Kárahnjúka en þá stendur eftir að færslan á ósnum hófst áður en rekstur Kárahnjúkavirkjunar hófst. Hvorn ósinn árnar velja til framtíðar kemur í ljós fljótt, segir Helgi og jafnvel strax í sumarlok. Kostnaður við verkið var óverulegur, að hans sögn.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira