Framtak starfsmanna Icelandair vekur heimsathygli Kjartan Atli Kjartansson skrifar 30. september 2014 10:33 Myndatakan var ekki í samræmi við starfsreglur Icelandair.
Starfsmenn Icelandair hafa vakið heimsathygli með því að skila manni iPad sem hann gleymdi um borð í vél flugfélagsins. Ekki nóg með það; starfsmennirnir tóku skemmtilegar myndir af sér á spjaldtölvuna. Miðillinn DailyMail hefur nú fjallað um málið. Frásögn eiganda iPadsins hefur vakið mikla athygli í vefsamfélaginu Reddit, þar sem eigandi tölvunnar sagði frá málinu. Í frétt DailyMail segir til að mynda að frásögn eigandans á Reddit hafi verið lesin í tæplega eina og hálfa milljón skipta. Í frásögn sinni á Reddit lýsir hann yfir mikilli ánægju með Icelandair: „Þetta eykur álit mitt á fyrirtækinu,“ skrifaði hann þar. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair segir að myndataka starfsmannanna hafi ekki verið í samræmi við vinnureglur en segir það hafa verið til sóma að spjaldtölvunni hafi verið skilað.Hruda hefur komist í samband við tvo af starfsmönnunum sem tóku þessar fyndnu myndir og þakkað þeim fyrir.Ótrúlega sáttur með þjónustuna Eigandi spjaldtölvunnar heitir Stepan Hruda. Hann er ótrúlega sáttur með þjónustuna; að starfsfólk fyrirtækisins hafi passað svona vel upp á spjaldtölvuna hans. Í samtali við Vísi segir Hruda að hann hafi meira að segja komist í samband við tvo af starfsmönnunum sem tóku myndir af sér á spjaldtölvuna. „Ég gat því þakkað þeim sérstaklega fyrir í gegnum Reddit og Twitter,“ segir hann sáttur. Hruda gleymdi spjaldtölvunni um borð í flugvél Icelandair fyrir þremur vikum, þegar hann flaug til Íslands frá New York í Bandaríkjunum. „Ég fattaði ekki að ég hafði gleymt tölvunni í flugvélinni fyrr en tveimur dögum seinna, þegar ég sat í heitum potti í norðurhluta Íslands,“ segir hann við Vísi. Hann segist hafa verið búinn að sætta sig við að fá ekki tölvuna aftur. Hann hafði samband við Icelandair í gegnum Twitter. „Starfsfólkið kom mér svo í samband við lögregluna og þá kom í ljós að tölvan var hjá henni. Ég gat því sótt tölvuna þegar ég fór aftur til Keflavíkur eftir ferðalag um Ísland,“ segir hann en frá Íslandi hélt hann til Spánar. „Ég sá svo ekki myndirnar fyrr en ég kom aftur heim til New York. Ég ákvað að stofna þráð um þetta á Reddit og allt varð vitlaust,“ bætir hann við. Spjaldtölva Hruda var læst, en samt sem áður var hægt að taka myndir með henni.Myndirnar hafa vakið mikla athygli.Ekki í samræmi við vinnureglurGuðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair segir að myndatakan hafi ekki verið í samræmi við vinnureglur. „Þetta mál sýnir öðru fremur fjölmiðlaumhverfið sem við búum við. Starfsfólkið kom spjaldtölvunni náttúrlega til skila með sóma og það er gaman að viðskiptavinurinn var ánægður. En myndatakan er ekki í samræmi við vinnureglur,“ segir hann. Í þræðinum sem Hruda stofnaði á Reddit sagði annar notandi, í athugasemdakerfinu, að starfsfólkið gæti lent í vandræðum vegna myndatökunnar. Þegar blaðamaður spurði Guðjón hvort að sú hefði verið raunin svaraði hann: „Nei, nei, en það var farið aðeins yfir vinnureglurnar.“ Ljóst er að málið hefur vakið mikla athygli og er góð auglýsing fyrir Icelandair. Til að mynda var myndband þar sem farið er yfir öryggismál um borð í vélum fyrirtækisins birt í frétt DailyMail. Það myndband má sjá hér að neðan.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Brotlenti í djúpu gili Innlent Fleiri fréttir Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Sjá meira