Eiginfjárstaða fjölskyldna batnar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. september 2014 10:54 Vísir/Auðunn
Eiginfjárstaða allra tegunda fjölskyldna batnaði á árinu 2013. Þetta á einkum við um einstæða foreldra en staða eiginfjár hjá þeim jókst um tæp 36% árið 2013. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Eiginfjárstaða einstaklinga jókst um 8,8%, hjóna án barna um 6,2% og hjóna með börn um 5,9%. Eiginfjárstaða milli ára hækkar mest í aldurshópunum 25-39 ára eða á bilinu 23%-49% sem einkum má rekja til bættrar eiginfjárstöðu í fasteign. Fjöldi fjölskyldna með neikvætt eigið fé í húsnæði fækkar líkt og gerst hefur síðustu ár. Árið 2013 voru 15.971 fjölskylda með neikvæða eiginfjárstöðu í fasteign eða rúmlega 10% færri en árið 2012 og að meðaltali nam neikvæð eiginfjárstaða í fasteign 4,6 m.kr. Frá árinu 2005 hefur hlutfallslegur fjöldi þeirra sem skulda meira en 150% af eignum aukist úr 10,1% fjölskyldna í tæp 23% og fjölskyldum sem skulda minna en 75% í eign fækkað úr tveimur þriðju í rúman helming. Eignir einstaklinga jukust um 3,8% milli ára eða úr 3.969 milljörðum kr. í 4.121 milljarð kr. Verðmæti í fasteignum hækkaði um 5,1% frá árinu 2012 sem rekja má að hluta til hækkunar fasteignamats um 7,7%. Skuldir einstaklinga námu 1.927 milljörðum kr. í árslok 2013 og jukust um 0,3% frá fyrra ári. Skuldir hjóna með börn drógust saman um 1,8% og einstæðra foreldra um 1,0% en jukust hins vegar hjá hjónum án barna um 3,4% og einstaklingum um 1,1%. Íbúðalán námu 1.242 milljörðum kr. og jukust um 1,5% milli ára. Aukning íbúðalána var einkum í eldri aldurshópum, um 7,9% hjá 60-66 ára og 10,7% hjá 67 ára og eldri. Íbúðalán 50-59 ára jukust um 3,3%-3,6% frá fyrra ári. Íbúðalánum þeirra sem voru yngri en 29 ára fækkaði um 7% og um 3% í aldurshópnum 30-39 ára.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira