Íbúðin stórskemmd og fær ekki bætur Kjartan Atli Kjartansson skrifar 30. september 2014 17:30 visir
Eigandi íbúðar í Mosfellsbæ fór fram á að fá greiddar bætur frá tryggingafélagi sínu, en íbúð hans var í rúst þegar hann kom inn í hana, eftir að hafa leigt hana út um tíma. Eigandinn fær tjónið ekki bætt en hann fór fram á tæpar sex milljónir í bætur vegna tjónsins og vegna þess að hann hefur ekki getað nýtt íbúðina eftir að hún var skemmd. Deilt var um hvort að tryggingafélag mannsins, Vörður, bæri að bæta tjónið. Í máli tryggingafélagsins fyrir dómi kom fram að félaginu væri ekki skylt að bæta tjónið, því það félli utan tryggingasamnings. Eigandi íbúðarinnar hélt því fram að tjónið hafi komið fram eftir innbrot, en í máli tryggingafélagsins kemur fram að það hafi ekki verið sannað.Hafði samband við lögreglu Eigandinn hafði samband við lögreglu í desembermánuði árið 2012. Þá hafði íbúi sem bjó í grennd við íbúðina, haft samband við eigandann og tjáð honum að mikil læti kæmu frá íbúðinni. Nágranninn hélt að verið væri að skemma íbúðina. Lögreglan fór ekki á vettvang. Eigandinn hafði átt í deilum við mann sem leigði íbúðina og var dómsmál í gangi þeirra á milli, þegar lögreglan var kölluð út. Hafði hann farið fram á að leigusamningnum yrði rift og var það mál í meðferð Héraðsdóms Reykjavíkur þarna í desember árið 2012. Í janúar 2013 lauk dómsmáli eigandans og leigjandans, en eigandi íbúðarinnar hafði farið fram á að leigjandanum yrði gert að yfirgefa íbúðina. Úrskurðað var í málinu í janúar og var eigandanum veittur aðgangur að íbúðinni. Leigjandinn hafði þá yfirgefið íbúðina.Þurfti að kalla til lögreglu „Um aðkomu að íbúðinni segir í gerðabók að þegar eignin hafi verið opnuð hafi verið ljóst að þörf væri á aðstoð lögreglu til þess að mynda umfangsmiklar skemmdir sem unnar höfðu verið á eigninni. Þá segir jafnframt: „Eignin er öll í rúst. Búið er að fara með sleggju eða þungan hamar og eyðileggja veggi, hurðar og gluggakistur auk alls annars í eigninni sem hægt er að skemma. Jafnframt er búið að sletta málningu á veggi og gólf.“ Lögreglan kom á vettvang, myndaði skemmdirnar og leiðbeindi stefnanda um framhaldið,“ segir í dómi héraðsdóms.Fór fram á tæpar sex milljónir Eigandi íbúðarinnar fór fram á að fá 5,7 milljónir króna frá tryggingafélaginu sínu, Verði. Maðurinn hélt því fram að rekja mætti skemmdir til innbrots, því skemmdir hafi verið unnar á hurðum. Þannig félli tjónið undir ákvæði í ábyrgðarskilmálum húseigendatryggingar hans og því bæri tryggingafélaginu að bæta tjónið. Lögmaður tryggingafélagsins sagði að ekki hafi verið sannað að um innbrot hafi verið að ræða. Og ef að brotist hafi verið inn í íbúðina sé ekki þar með sagt að allt tjónið sem eigandinn hafi orðið fyrir hafi komið frá innbrotinu.Vörður ekki bótaskylt Í niðurstöðu dóms héraðsdóms segir: „Í málinu er ágreiningur um hvort verksummerki á dyraumbúnaði hafi borið með sér að brotist hafi verið inn í íbúðina. Ljósmyndir sem teknar voru af fulltrúa sýslumanns sýna óveruleg verksummerki á hurðarkarmi íbúðarinnar. Fyrir liggur að lás á útidyrahurð var skemmdur þannig að komast mátti inn í íbúðina án lykils. Í frumskýrslu lögreglu sem rituð var í tengslum við aðfarargerðina er útkallið flokkað sem eignaspjöll og meiri háttar skemmdarverk. Í henni er að finna takmarkaðar upplýsingar en lögð var áhersla á að mynda skemmdir innandyra. Af henni verður ekki ráðið að á þeim tíma hafi grunur leikið á að um innbrot hafi verið að ræða. Slíkt verður heldur ekki ráðið af staðfestingu fulltrúa sýslumanns. Þá verður ekki hjá þeirri staðreynd litið að leigjandinn hafði umráð yfir íbúðinni fram til þess að gerð sýslumanns fór fram. Líkur eru þannig á því að spjöll á eigninni, að hurðarbúnaði meðtöldum, hafi verið unnin af honum eða gestum hans eins og fyrirliggjandi gögn gefa vísbendingu um. Stefnandi lagði þó ekki fram kæru af þessu tilefni þrátt fyrir leiðbeiningar lögreglu. Því fór lögreglurannsókn ekki fram í málinu eins og full ástæða var þó til.“ Í staðinn fyrir að fá tjónið bætt þurfti maðurinn því að greiða tryggingafélaginu sínu 400 þúsund krónur í málskostnað.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Sjá meira