Innlent

Sóttu slasaða konu í Forsæludal

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Gunnar Örn Jakobsson.
Björgunarsveitir Húnavatnssýslu voru kallaðar út fyrir hádegi í dag þegar sækja þurfti konu, sem meiddist á hné. Hún var þá stödd fyrir ofan Forsæludal í Vatnsdal og bera þurfti hana um 200-300 metra leið í fjalllendi til að koma henni í sjúkrabíl.

Fyrsti hópur björgunarmanna, ásamt sjúkraflutningsmanni, var kominn að konunni rétt fyrir klukkan 12:00 og um hálftíma síðar var hún komin í sjúkrabíl sem flutti hana á heilbrigðisstofnun til aðhlynningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×