Mótorhjólaslys á sunnanverðu Snæfellsnesi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. ágúst 2014 10:32 Þyrla Landhelgisgæslunnar. Vísir/Daníel
Tvennt slasaðist í mótorhjólaslysi á sunnanverðu Snæfellsnesi fyrir hádegi í dag. Tildrög slyssins eru óljós sem stendur en þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið send á vettvang.Uppfært klukkan 11:46 Þyrla gæslunnar flutti fólkið frá Snæfellsnesi og lenti við Landspítalann í Fossvogi upp úr klukkan hálf tólf. Ástand annars þeirra er alvarlegt samkvæmt vakthafandi lækni á slysadeild.Garðar í Staðarsveit á Snæfellsnesi.Vísir/PjeturUppfært klukkan 12:25 Að sögn lögreglumanns á Snæfellsnesi var um karl og konu að ræða, erlenda ferðamenn um fimmtugt. Voru þau á ferð við bóndabýlið Bláfeld í Staðarsveit. Svo virðist sem vindkviða hafi orðið til þess að fólkið fór útaf veginum en hvasst var á Snæfellsnesi í morgun. Samkvæmt lögreglumanni sem kom á vettvang var konan umtalsvert meira slösuð en maðurinn þó hann hefði einnig kennt sér meins. Konan var hins vegar allan tímann við meðvitund á meðan beðið var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar.Uppfært klukkan 15:36 Við komuna á Landspítalann var konan í alvarlegu ástandi, með innvortis blæðingar og var lögð inn á gjörgæslu. Læknir á vakt sagði hana vera í nauðsynlegri skurðaðgerð. Ástand mannsins var stöðugt en talið er að hann hafi brotnað á hálsi.Uppfært klukkan 21:45Ferðamennirnir, sem eru hollenskir, eru enn á Landspítalanum í Fossvogi. Líðan konunnar er stöðug og er hún á gjörgæslu. Ekki er búist við að hún þurfi á frekari skurðaðgerðum að halda. Vakthafandi læknir á gjörgæslu sagði manninn aldrei hafa komið þangað inn en að hann hvíldist þó enn á annarri deild á spítalanum.
Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Bein útsending: Bandero kominn til Sundahafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið „Þá bara krassa lungun“ Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Bandero kominn til Sundahafnar Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Sjá meira