Þrítugföldun útflutningsverðmæta á áratug Svavar Hávarðsson skrifar 13. ágúst 2014 09:26 Eftir að makrílveiðar hófust og vinnsla til manneldis margfölduðust viðskiptin við Rússa. Fréttablaðið/Óskar
Árið 2003 fluttu Íslendingar út sjávarafurðir fyrir 600 milljónir til Rússlands. Í fyrra voru útflutningsverðmætin 18,6 milljarðar króna. Aukningin er 32-föld. Nýsett innflutningsbann til landsins er því áhyggjuefni og mikilvægt fyrir íslensk sjávarútvegsfyrirtæki að markaðurinn haldist opinn vegna mikilvægis fyrir ákveðna afurðaflokka.Sinnum 32 Ráðamenn í Rússlandi tilkynntu í lok síðustu viku um innflutningsbann gagnvart Vesturlöndum, sem tók gildi tafarlaust. Bannið er augljóslega svar þeirra við sífellt hertum viðskiptaþvingunum vestrænna ríkja í kjölfar afskipta Rússa í Úkraínu. Bannið er víðtækt, nær til Evrópusambandsríkjanna, Bandaríkjanna, Kanada, Ástralíu og Noregs. Eins og greint hefur verið frá vekur vera Noregs á listanum, en ekki Íslands, sérstaka athygli, enda hefur Noregur sömu stöðu gagnvart Rússlandi. Í nýrri greiningu Íslenska sjávarklasans taka hagfræðingarnir Bjarki Vigfússon og Haukur Már Gestsson saman helstu atriði þessa máls, sem mun hafa áhrif á íslenska verslun við Rússland með beinum og óbeinum hætti. Fyrst af öllu vekja þeir Bjarki og Haukur Már athygli á því að útflutningsverðmæti sjávarafurða til Rússlands hefur vaxið gríðarlega á undanförnum árum. Munar þar mest um útflutning á heilfrystum makríl, en jafnframt hefur útflutningur á heilfrystum karfa, heilfrystri loðnu, loðnuhrognum og heilfrystri síld stigið jafnt og þétt síðasta áratuginn.Makríllinn mikilvægastur Það er makríllinn sem skiptir hér meginmáli. Vöxtur útflutnings til Rússlands skýrist af sölu þessarar uppsjávartegundar. Mikilvægt er að hafa í huga að frysting hefur verið helsta leið framleiðenda uppsjávarfisks til aukinnar verðmætasköpunar, í stað mjöl- og lýsisvinnslu. Á síðasta ári skapaði heilfrystur uppsjávarfiskur útflutningsvirði upp á 38 milljarða, en þar af skilar Rússlandsmarkaður 14 milljörðum, eða ríflega 37%. Því er ljóst að framleiðendur þessara afurða hafa töluverðra hagsmuna að gæta af áframhaldandi viðskiptum milli Íslands og Rússlands. Í greiningunni koma fram þær upplýsingar að talsvert magn af óseldum makríl sé í frystigeymslum hér á landi eftir vertíð sumarsins og að sama skapi sé einhver hluti afla sumarsins geymdur óseldur í frystigeymslum erlendis. Nú þegar rússneskum fyrirtækjum reynist ólöglegt að versla við norsk sjávarútvegsfyrirtæki er hugsanlegt að íslenski makríllinn seljist hraðar en ella. Til skamms tíma gæti innflutningsbann Rússa því haft góð áhrif á greiðslustöðu íslensku útgerðarinnar. Þó verður að slá þann varnagla að innflutningur til Rússlands er háður ströngum skilyrðum sem ekki allir makrílframleiðendur hér á landi uppfylla. Þá verður að teljast ólíklegt að bannið muni hafa mikil áhrif á verð á makríl.Laxinn aðalmálið Útflutningur Norðmanna á uppsjávarfiski, einkum síld, loðnu og makríl, er áþekkur hinum íslenska og mikilvægi hans svipað og fyrir íslensk fyrirtæki í slíkri útgerð. Árið 2013 fluttu norskir framleiðendur út uppsjávarfisk til Rússlands að andvirði 20 milljarða íslenskra króna. Samtals fluttu norsk fyrirtæki um 300.000 tonn af sjávarafurðum til landsins og útflutningstekjur þeirra námu 120 milljörðum íslenskra króna af þeim viðskiptum. Viðskiptahagsmunir Norðmanna felast fyrst og síðast í verslun til Rússlands með eldislax. Tölurnar eru ógnarháar. Rússar keyptu eldislax af Norðmönnum fyrir að jafnvirði 100 milljarða íslenskra króna í fyrra. Þetta opnar hugsanlega einhverjar dyr fyrir íslensku laxeldisfyrirtækin inn á nýjan markað í Rússlandi, en í greiningunni er það talið ólíklegt. Í greiningunni er jafnframt talið ólíklegt að innflutningsbannið hafi mikil áhrif á verð á eldislaxi, kannski lítið eitt til lækkunar. Þeir vitna til sérfræðinga sem eru sammála um að Norðmenn muni finna sér aðra kaupendur lokist Rússlandsmarkaður til lengri tíma. Það er ein aðalniðurstaða greiningarinnar að þótt rætt hafi verið um hugsanleg tækifæri íslenskra útflytjenda sjávarafurða af brotthvarfi Norðmanna af Rússlandsmarkaði sé ljóst að aðalhagsmunir Íslendinga felist í því að Rússlandsmarkaður haldist opinn.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Fleiri fréttir Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Sjá meira