Tónleikar í anda Ástu Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 22. nóvember 2014 15:00 Við fengum til liðs við okkur frábæra tónlistarmenn,“ segir Helga er hún lýsir styrktartónleikunum í Austurbæ á þriðjudag. Vísir/GVA „
Við vinir Ástu og fjölskylda hennar stofnuðum Ástusjóð í sömu viku og jarðarförin fór fram og nú ætlum við að halda styrktartónleika til að afla fjár. Tilgangurinn er fyrst og fremst að sýna björgunarsveitarmönnum og öðrum sem þátt tóku í hinni umfangsmiklu leit, þakklæti okkar í verki.“ Þetta segir Helga Hauksdóttir, lögmaður og vinkona Ástu Stefánsdóttur sem leitað var í rúmar fimm vikur í Bleiksárgljúfri í Fljótshlíð í sumar. Helga er formaður sjóðsins. Hún kveðst hafa kynnst Ástu í menntaskóla og þær hafi líka fylgst að í lagadeild Háskóla Íslands. Fyrsta stóra verkefni sjóðsins er kaup á fjórum drónum til að gefa Flugbjörgunarsveitinni á Hellu og björgunarsveitinni Dagrenningu á Hvolsvelli sem báru hitann og þungann af leitinni, að sögn Ástu. Hvor sveit fær tvö slík tæki. „Það mæddi mikið á þessum sveitum í sumar. Þær eru líka staðsettar á svæði þar sem er mikil umferð ferðamanna og mjög víða erfiðar leitaraðstæður. Þess vegna er mikilvægt að þær fái sem fyrst tækifæri til að prófa notagildi drónanna,“ segir hún. Helga segir sjóðinn líka stofnaðan til að halda minningu Ástu á lofti. „Við viljum vera með einhverja viðburði sem tengjast hennar hugðarefnum á sviði lögfræðinnar, sem voru mannréttindi, refsiréttur og umhverfisréttur. Við getum kannski styrkt einhverja sem vinna að rannsóknum á þessum sviðum, haldið málþing eða eitthvað slíkt. En drónarnir eru algert forgangsverkefni og þeir eru á leið til landsins. Styrktartónleikar Ástusjóðs verða í Austurbæ við Snorrabraut á þriðjudagskvöld, 25. nóvember og hefjast klukkan 20. „Við fengum til liðs við okkur frábæra tónlistarmenn, segir Helga og nefnir hljómsveitirnar Árstíðir og Byzantine Silhouette, Megas og Möggu Stínu, Röggu Gröndal og Svavar Knút. „Við erum með styrktaraðila fyrir húsnæðinu og engir miðar eru gefnir, ágóði þeirra rennur beint í sjóðinn,“ tekur hún fram. Helga segir tónleikana vera í anda Ástu sem hafi verið mikill listunnandi. „Við vonum að sem flestir styðji þetta góða málefni,“ segir hún og tekur fram að miðar séu seldir á 3.500 á midi.is og þeim sem vilji leggja sjóðnum lið með öðrum hætti bendir hún á að reikningsnúmer hans er 301-13-302339 og kennitalan er 630714-0440. Hvað eru drónar? „Drónar eru mannlaus flygildi með myndavélum sem er ætlað að auðvelda leit í aðstæðum sem geta verið erfiðar annars. Annar dróninn sem hvor sveit fær er með hitamyndavél. Þær gefa sérstaka möguleika á að greina lifandi fólk þar sem það sker sig úr umhverfinu vegna hitaútstreymis. Tækið nýtist því ekki síst vel í slæmu skyggni og myrkri. Það er með skjá og sá sem stýrir því nemur myndir frá því jafnóðum. Þessi tæki eru í örri þróun og við vitum ekki til að þau hafi verið notuð við leit hér á landi.“
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira