Slysagildra frá 2007: Kom að litlum strák föstum í vatninu Hanna Ólafsdóttir skrifar 26. september 2014 07:00 Eins og sjá má myndast lítið stöðuvatn í vætusömu veðri þar sem áður átti að reisa 800 fermetra einbýlishús. Fréttablaðið/Ernir „
Eins og staðan er núna, þá er pollur yfir öllum grunninum þarna. Jarðvegurinn hefur alltaf tekið við, en nú er það að breytast. Það er komið miklu stærra vatn þarna heldur en nokkurn tíma áður,“ segir Una Mathiesen Nikulásdóttir, íbúi í Hafnarfirði, um lóð að Stekkjarbergi 9 í bænum. Íbúar í grennd við lóðina segja hana slysagildru, þar sem ofan í henni safnist fyrir vatn sem laði að sér börn að leik. „Sjálf hef ég veitt lítinn strák þarna upp úr. Ætli hann hafi ekki verið í fyrsta bekk. Hann stóð fastur í leðju og vatnið náði honum upp að hnjám. Hann var í stígvélum og ætlaði bara aðeins að sulla. Ég var að keyra þarna fram hjá og sá hann bara fyrir tilviljun.“ Una segist nokkrum sinnum hafa haft samband við bæjaryfirvöld til að lýsa yfir áhyggjum vegna málsins. „Þar benda bara allir hver á annan, segir Una, þreytt á viðbragðsleysi bæjaryfirvalda. Lóðin er í eigu Magnúsar Ármanns sem árið 2007 hugðist reisa þar 800 fermetra einbýlishús. Ekkert hefur verið unnið í húsgrunninum í talsverðan tíma og óljóst er um áform Magnúsar og konu hans um að ljúka við byggingu hússins. Ólafur Ingi Tómasson, formaður skipulags- og byggingaráðs Hafnarfjarðar segir ástæðu vatnssöfnunarinnar vera stíflu í frárennslislögn sem ekki hefur verið hægt að losa en unnið sé að því að leggja nýja lögn frá grunninum.
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Fleiri fréttir Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Sjá meira