49 ára hamingjusöm tvíburamamma Elín Albertsdóttir skrifar 13. september 2014 12:00 Bryndís, Jan og Selma ásamt Eddu og Erik á skírnardaginn. Skírnin fór fram í Holmenkollen-kirkju 7. september.
Litlu kraftaverkin Edda og Erik dafna vel. Það fjölgaði heldur betur í fjölskyldu Bryndísar Hólm, fyrrverandi fréttamanns á Stöð 2, í sumar þegar tvíburarnir Edda og Erik komu í heiminn. Bryndís, sem er 49 ára, segir að litlu gleðigjafarnir taki allan hennar tíma þessa dagana. Bryndís flutti til Noregs árið 2006 ásamt norskum eiginmanni sínum, Jan Fredrik Rosenberg, og dótturinni Selmu, sem nú er 8 ára. Þau langaði að prófa að búa í Ósló. Lífið tók síðan óvænta stefnu í sumar þegar tvíburar komu í heiminn á þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní. „Þetta var róttæk en ánægjuleg breyting á högum okkar,“ segir Bryndís þegar við slógum á þráðinn til hennar. „Umönnun barnanna er vinna allan sólarhringinn. Tvíburarnir fæddust tæpum sjö vikum fyrir tímann og þetta var auðvitað svolítið erfitt í fyrstu en núna er komin rútína á líf þeirra. Edda var 1,9 kg við fæðingu en Erik 1,8 kg. Þau eru að ná fjórum kílóum svo allt hefur gengið mjög vel,“ segir hin stolta móðir. „Þetta er krefjandi verkefni en jafnframt afar ánægjulegt. Það getur stundum reynst erfitt að komast í sturtu eða fá sér að borða því börnin þurfa athygli. Ég vissi auðvitað á meðgöngunni hvað biði mín og var undir það búin. Maður gerir sér hins vegar aldrei alveg grein fyrir hvernig þetta verður fyrr en á reynir. Selma er í skýjunum, enda lengi búin að þrá systkini. Hún er afskaplega dugleg að hjálpa til.“ Um síðustu helgi voru litlu krílin skírð og fengu nöfnin Edda Hólm Rosenberg og Erik Hólm Rosenberg. Núna um helgina munu þau fagna með langömmu sinni sem verður 90 ára. Það er sannarlega ánægjulegt fyrir elstu kynslóðina að kynnast þeirri nýjustu.Kynntust á Íslandi Bryndís og Jan kynntust árið 1999 og giftu sig 2001. Hann starfaði hjá Járnblendifélaginu en hún var þá í fjölmiðlaheiminum. Fyrsta barnið fæddist árið 2005 og síðan komu litlu krílin níu árum síðar. Þegar hún er spurð hvort það hafi verið planlagt á þessum aldri að stækka fjölskylduna, svarar hún: „Óskin var mjög heit að eignast fleiri börn en það var fyrst nú sem hún varð að veruleika. Edda og Erik eru algjört kraftaverk. Meðgangan gekk vel en það tók auðvitað á í lokin að ganga með tvö börn. Þótt tvíburarnir hafi fæðst fyrir tímann voru þeir alveg tilbúnir að koma í heiminn,“ segir Bryndís. „Ekki var verra að það skyldi vera á þjóðhátíðardaginn, þetta eru sannir Íslendingar.“ Ekki eftir pöntun Bryndís segir að það fari auðvitað eftir aðstæðum kvenna hvenær þær óski að eiga börn sín. „Ég myndi kannski ekki mæla með því að konur frestuðu fæðingum fram yfir fertugt en því miður koma börnin ekki eftir pöntun. Það er hins vegar frábær upplifun að eignast barn á þessum aldri og þarf ekki að stoppa mann frá því að lifa lífinu. Við erum til dæmis búin að bóka sumarfrí til Bandaríkjanna næsta sumar með alla fjölskylduna. Ég verð bara ótrúlega töff á sextugsaldri að elta ungana mína,“ segir hún. „Þau munu halda mér ungri.“ Bryndís á vinkonu sem er orðin amma og aðrar sem eru að gifta börnin sín. „Þær gifta og ég skíri,“ segir hún og hlær. „Hér hefur verið gott veður í allt sumar og mér finnst einstaklega skemmtilegt að labba úti með tvíburavagninn,“ segir þessa stolta móðir og bætir við: „Börnin veita mér mikla hamingju.“ Bryndís segir að þeim líði vel í Ósló. Þau hafa búið sér heimili á góðum stað nálægt Holmenkollen þar sem stutt er í náttúruparadís. „Við ætluðum í fyrstu ekki að setjast hér að í langan tíma en þegar hrunið varð á Íslandi var ekki mjög fýsilegt að snúa til baka. Við erum bæði í góðu starfi og ekki á heimleið á næstunni hvað sem síðar gerist.“Full laun í fæðingarorlofi Fyrst eftir að Bryndís flutti til Noregs skrifaði hún fyrir íslensk blöð en síðan langaði hana að vera meira meðal fólks. „Ég fékk vinnu hjá Olíufyrirtækinu VNG Norge og er búin að starfa hjá þeim í rúm sex ár. Ég starfa á upplýsingadeild og finnst afar áhugavert að kynnast olíuiðnaðinum á þennan hátt. Ég sakna auðvitað blaðamennskunnar og þess skemmtilega fólks sem vann með mér en það er alltaf gaman að kynnast einhverju nýju,“ segir hún. Bryndís hafði aldrei áður búið í Noregi þótt hún hefði heimsótt landið. Tveir af þremur bræðrum hennar hafa búið þar lengi. Þegar hún er spurð um fæðingarorlof í Noregi segir hún það betra en á Íslandi. Foreldrar halda sínum launum á meðan á orlofinu stendur en það er 49 vikur miðað við eitt barn en 54 þegar um tvíbura eru að ræða. Þar af á pabbinn rétt á 14 vikum.Fjölskylduvænt samfélag Um helgina ætla þau að horfa á dótturina Selmu keppa í frjálsíþróttamóti en hún hefur fetað í fótspor móður sinnar. Bryndís keppti lengi í frjálsum íþróttum. „Hún hefur sérstakt dálæti á langstökki en það var einmitt mín grein,“ segir Bryndís ánægð og bætir síðan við: „Hér er mjög fjölskylduvænt samfélag og sjaldgæft að fólk vinni eftirvinnu. Yfirmaður minn er til dæmis alltaf kominn í stuttbuxur og með bakpoka klukkan fjögur. Þá er farið í hjólaferð eða göngu með fjölskyldunni. Á veturna eru skíðin tekin fram. Það er ríkt í menningunni hér að fjölskyldan geri eitthvað saman.“
Mest lesið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Sjá meira