Lifa tvöföldu lífi á samfélagsmiðlum 11. september 2014 17:15 Hér má sjá skjáskot af myndasíðum nokkurra stúlknanna.
Netöryggi hefur mikið verið rætt í fjölmiðlum upp á síðkastið. Mikið hefur borið á því undanfarið að íslenskar unglingsstúlkur noti samskiptamiðilinn Instagram til þess að tjá erfiðar tilfinningar. Instagram-síðurnar ganga þannig fyrir sig að notandinn deilir þar myndum að eigin vali, en getur ráðið hvort síðan er opin öðrum notendum eða hvort biðja þurfi sérstaklega um aðgang að henni. Svo virðist sem þær noti opna aðganginn til þess að setja upp eins konar fullkomna ímynd. Á lokaða aðganginum birta þær svo myndir sem eru kannski raunverulegri eða sýna líf þeirra og líðan í réttu ljósi. Undir myndirnar skrifa þær athugasemdir á borð við „Ég hef alltaf verið ósátt með líkama minn“ eða „Vildi óska þess að ég myndaðist vel“. Stúlka á fermingaraldri setti inn mynd af sígarettu og skrifaði undir „tvær á dag koma skapinu í lag“. Fréttablaðið hafði samband við unglingsstúlku sem þekkir þetta vel og lýsti svona: „Þær setja allt þarna inn og setja viljandi ljótar myndir þarna í staðinn fyrir að setja það á opnu síðuna, því þar á allt að vera fullkomið. Þetta er eiginlega eins og að eiga annað líf þar sem þær segja hvað allt sé ömurlegt og þær ömurlegar.“ Hrefna Hrund Pétursdóttur, sálfræðingur í Forvarna- og meðferðarteymi barna hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, segir að mögulega sé þetta leið þessara unglingsstúlkna til að fá útrás fyrir erfiðar tilfinningar sem þær séu ekki tilbúnar að deila nema með útvöldum. Í sumum tilvikum gæti þetta hreinlega verið kall á hjálp. „Það er þekkt að sumir einstaklingar, sem líður illa, setji upp grímu til þess að aðrir sjái ekki hversu illa þeim líður, en þeim líður í raun mjög illa. Þetta gæti verið birtingarmynd af því sem hefur þá færst á netið,“ segir Hrefna, og á þá við að opni aðgangurinn sé líkur þeirri grímu sem fólk notar til að fela raunverulegar tilfinningar sínar. - asi
Mest lesið Meghan snýr aftur á skjáinn Bíó og sjónvarp Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Lífið Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lífið Bautista hleypur í skarðið Bíó og sjónvarp Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Lífið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Lífið Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Lífið samstarf Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Lífið samstarf Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Lífið Etur kappi við Obama og Reynolds Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Sjá meira