Hækkun matarskattsins viðkvæmt mál innan ASÍ Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 22. ágúst 2014 18:15 Rætt um að hækka matarskatt Matvæli bera sjö prósenta virðisaukaskatt, hugmyndir eru uppi um að hækka virðisaukaskattinn á matvæli upp í 14 til 15 prósent.
Líklegt má telja að fjármálaráðherra leggi fram breytingar á virðisaukaskattskerfinu í tengslum við fjárlagafrumvarpið þegar þing kemur saman í september. „Það sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir eru hóflegar álögur og einfalt skattkerfi. Ég tel að við eigum að stíga skref í þá átt ekki seinna en í haust. Þá eigum við að einfalda kerfið og lækka skatta,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar Alþingis.Guðlaugur Þ. Þórðarsonfréttablaðið/vilhelmSamkvæmt heimildum Fréttablaðsins er ekki búið að negla niður neinar tölur varðandi lækkun og hækkun á virðisaukaskattþrepunum. Efra þrep skattsins er nú 25,5 prósent, það hækkaði um prósentustig í tíð síðustu ríkisstjórnar. Rætt er um að lækka skattinn aftur niður í 24,5 prósent jafnvel meira. Neðra þrepið er sjö prósent og rætt er um að hækka það í áföngum, upp í 14 til 15 prósent. Stefnt er að því að flestar vörutegundir og þjónusta fari í þetta þrep. Til að kaupmáttur minnki ekki við þessar breytingar á að lækka vörugjöld á móti. Guðlaugur Þór segir að virðisaukaskattskerfið sé allt of flókið. Skýrasta dæmið um það sé að finna í ferðaþjónustunni. „Slíkt kerfi ýtir undir undanskot og kerfið er dýrt vegna þess að það krefst mikils eftirlits. Það þarf minna eftirlit með einföldu skattkerfi sem allir skilja.“Karl GarðarssonKarl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, situr í fjárlaganefnd. Hann tekur undir með Guðlaugi Þór að það þurfi að einfalda kerfið, það sé of flókið og undanþágur of margar. Hins vegar kveðst hann á móti því að hækka virðisaukaskatt á matvæli en þau bera sjö prósenta virðisaukaskatt. „Ég er á móti því að hækka matarskattinn. Það kemur illa við þá sem hafa lægstu launin,“ segir Karl. „Á sama tíma og skattahækkanir á matvæli eru boðaðar bólar ekkert á því að ferðaþjónustan og aðilar tengdir henni borgi sitt. Við samþykktum á síðasta ári að hætta við að færa hótel- og gistiþjónustu í efra skattþrep, en nú er tímabært að endurskoða þá ákvörðun,“ segir Karl og bætir við að það sé eðlilegt að hækka álögur á hótel og gistiþjónustu í áföngum. Hann bendir á að fjölmargir aðilar tengdir ferðaþjónustu borgi ekki virðisaukaskatt.Gylfi ARnbjörnsson Alþýðusamband Íslands hefur miklar efasemdir um hækkun matarskattsins. „Við höfum ekki séð neina útfærslu á þessu. En það eru miklar efasemdir innan okkar raða um hækkun matarskattarins. Ég á ekki von á öðru en því verði mætt af mikilli tortryggni,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Hann segir málið mjög viðkvæmt í augum félagsmanna ASÍ því allir verði að kaup mat, það komist enginn undan því. Guðlaugur Þór segir að menn megi ekki að festa sig í að ræða einn anga málsins það er um matarskattinn. „Við eigum að fara yfir skattamálin í heild og ræða þau í samhengi við breytingar á vörugjöldum og tollum,“ segir Guðlaugur Þór.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Sjá meira